Ár síðan Írakar tóku yfir 28. júní 2005 00:01
Í dag er ár liðið frá því að Írakar tóku við stjórnartaumunum í eigin landi úr höndum Bandaríkjamanna. Ýmislegt hefur áunnist en vandamálin sýnast þó miklu stærri. Það verður varla sagt að íröksk stjórnvöld hafi komist langt á þessu eina ári, enda aðstæður afar erfiðar. Enn er íbúunum ekki tryggð lágmarksheilbrigðisþjónusta, rafmagn, vatn og aðrar brýnar lífsnauðsynjar. Það sem skiptir flesta þó líklega mestu máli nú er að geta lifað við öryggi en ástandið hefur lítið sem ekkert batnað í þeim efnum. Margir eru hræddir við að senda börnin sín í skóla af ótta við að þeim verði rænt eða að þau lendi í skothríð eða sprengingu. Samkvæmt tölum AP-fréttastofunnar hafa 479 bílasprengjur sprungið síðan bráðabirgðastjórnin tók við - að meðaltali 1,3 á dag. Í dag var elsti þingmaður Íraka, Dhari al-Fayadh, áttatíu og sjö ára gamall sjítamúslimi, til dæmis myrtur í sjálfsmorðssprengingu. Mun fleiri eru á listanum yfir fórnarlömb dagsins en venjulegar fréttastofur komast hreinlega ekki yfir að greina frá öllum tilræðunum. Íröksku lögreglunni ásamt Bandaríkjaher hefur gengið erfiðlega að knésetja uppreisnarmenn í landinu en Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, sagði í vikunni að líklega myndi taka hátt í áratug að koma á friði í landinu. Það eru því ærin verkefni sem bíða íraskra yfirvalda, ekki bara næsta árið heldur áratugina.
Erlent Fréttir Írak Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Innlent Fleiri fréttir Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Sjá meira