Sport

Bayern með níu stiga forystu

Bayern Munchen náði í gær níu stiga forystu í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu þegar liðið sigraði Bochum, 3-1. Á sama tíma töpuðu helstu keppinautar þeirra í Schalke fyrir Herthu Berlín. Berlínarmenn unnu 4-1. Þegar fjórar umferðir eru eftir er Bayern með 65 stig, Schalke 56 og Stuttgart, sem gerði markalaust jafntefli við Wolfsburg, er í þriðja sæti með 55 stig.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×