Risaborarnir í vandræðum 23. mars 2005 00:01
Risaborarnir þrír við Kárahnjúka eru nú ýmist stopp eða í hægagangi vegna vatnsleka og erfiðra jarðlaga. Þrátt fyrir afar þröngan tímaramma segja Landsvirkjunarmenn þó ekkert benda til annars en að virkjunin verði tilbúin á tilsettum tíma. Það á að bora samtals 75 kílómetra af jarðgöngum vegna Kárahnjúkavirkjunar, þar af er risaborunum ætlað að bora 50 kílómetra. Þeim hefur fram til þessa miðað vel, búnir að bora fimmtán kílómetra, en nú hefur hægt á borverkinu. Einn borinn er stopp meðan verið er að skapa rými svo hann geti beygt en hinir tveir eru lentir í erfiðu bergi. Sigurður Arnalds, upplýsingafulltrúi Kárahnjúkavirkjunar, segir að einn boranna sé að fara í gegnum millilög og þá þurfi að styrkja bergið með stálboga sem sé gríðarlega tímafrekt. Þá er þriðji borinn í vatnsríku móbergi. Sigurður segir þann bor hafa lent í vandræðum vegna innrennslis í berginu og þá þurfi að bora á undan bornum og þétta bergið. Þetta gangi en þó hægt rétt á meðan þetta vari. Menn voni að hann komist yfir erfiðasta hjallann mjög fljótlega. Tafir við stíflugerðina hafa einnig valdið áhyggjum. Sigurður segir að menn hafi haft gríðarlegar áhyggjur í haust af stíflunni í gljúfrinu. Það hafi hins vegar gengið vel að steypa upp margumræddan vegg og Landsvirkjun telji að komist verði upp úr gljúfrinu í vor og eftir það verði tiltölulega einfalt að ljúka stíflunni. Vonir standi til að menn verði komnir ágætlega á áætlun þar í sumar. Menn hafi því ekki miklar áhyggjur af stíflunni lengur. Kárahnjúkavirkjun á að hefja raforkuframleiðslu eftir aðeins tvö ár þannig að ljóst er að tímarammin er afar þröngur. Sigurður segir að ramminn hafi alltaf verið þröngur en það sé ekkert í dag sem bendi til annars en að virkjunin verði tilbúin á tilsettum tíma.
Fréttir Innlent Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Rubio lentur á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Sjá meira