Ákvörðun Íslendinga vonbrigði 22. mars 2005 00:01
Linda J. Hartley, talsmaður bandaríska sendiráðsins, segir að bandarísk stjórnvöld hafi orðið fyrir vonbrigðum með þá ákvörðun Íslendinga að bjóða Fischer ríkisborgararétt og komið því á framfæri við stjórnvöld. Þau vilji fá Fischer til Bandaríkjanna. Fischer sé enn bandarískur ríkisborgari en ferðir hans verði ekki heftar. Bandarísk stjórnvöld sendi frá sér yfirlýsingu þegar Fischer sé kominn hingað til lands. Sæmundur Pálsson, vinur skákmeistarans Bobby Fischers, fer í dag eða á morgun til Japans og vonast til að koma með Fischer hingað til lands á morgun eða um helgina. Miyoko Watai, unnusta Fischers og forseti japanska skáksambandsins, kemur með honum hingað til lands og ætlar að dveljast með honum hér um óákveðinn tíma. Watai segir að þau séu búin að ganga frá ferðatilhöguninni en Fischer hafi áhyggjur af því að Bandaríkjamenn reyni að hefta ferð hans og því sé ferðaskipulaginu haldið leyndu. Hún segir að þau hafi talað um að giftast, til dæmis hér á landi, en vill ekki gefa neitt upp um það hvort Íslendingar eigi von á brúðkaupi. Hún vill heldur ekkert segja um það hvort hún muni búa með honum hér á landi til frambúðar. Sæmundur fer í dag eða á morgun til Japans ásamt kvikmyndagerðarmönnunum Friðriki Guðmundssyni og Kristni Hrafnssyni og Páli Magnússyni, fréttastjóra á Stöð 2. "Það hefði verið best ef ég hefði getað hitt Fischer í Danmörku en hann vildi að ég kæmi alla leið. Ég vona að ég komist með hann til landsins fyrir helgina. Framtíðin verður svo að skera úr um framhaldið," segir Sæmundur. Fischer og unnusta hans munu búa á hóteli til að byrja með og segir Sæmundur að Fischer sé samþykkur því en ekki hafi verið gengið frá gistingunni að öðru leyti.
Fréttir Innlent Mest lesið Mótmælendur lokuðu veginum að Bláa lóninu Innlent Tekur U-beygju og kallar stuðningsmenn sína aumingja Erlent Átta börn fædd úr erfðaefni þriggja einstaklinga til að fyrirbyggja sjúkdóma Erlent Grunur um að maður hafi kveikt í húsi í Reykjanesbæ Innlent Von der Leyen dásamaði útsýnið á Reykjavíkurflugvelli Innlent Ásthildur bendir strandveiðimönnum á minnihlutann Innlent Félag eldri borgara vildi bygginguna nær lóðarmörkunum Innlent Segir ferðaþjónustunni mismunað og efnir til mótmæla Innlent Dregið úr virkni en virðist enn gjósa í um tíu gígum Innlent Aðalsvið Tomorrowland brann til kaldra kola Erlent Fleiri fréttir Flutti tæp þrjú kíló af kókaíni til landsins og fær tvö ár Ætlar ekki að þegja til að láta fordómafullu fólki líða betur Strandveiðar færast frá Viðreisn til Flokks fólksins Myndir: Flugu til Þórsmerkur og Grindavíkur Mótmælendur lokuðu veginum að Bláa lóninu „Annars lítur þetta ekki mjög vel út fyrir þær“ „Sýnið nú kjark og dug og gerið þetta almennilega“ Grunur um að maður hafi kveikt í húsi í Reykjanesbæ Staðan á gosinu og óánægja með lokanir í Grindavík Segir ferðaþjónustunni mismunað og efnir til mótmæla Félag eldri borgara vildi bygginguna nær lóðarmörkunum Von der Leyen dásamaði útsýnið á Reykjavíkurflugvelli Landlæknir hlynnt því að banna ljósabekki Loftgæði mælast óholl á Akureyri Dregið úr virkni en virðist enn gjósa í um tíu gígum Met í verðtryggðum lánveitingum lífeyrissjóðanna Ásthildur bendir strandveiðimönnum á minnihlutann Opnaði listasýningu aldargamall og segir verkin verða eins og börnin sín Blámóða vofir yfir Vestfjörðum og Skagafirði Dettifossi kippt í lag og seinkar um sólarhring Grindvíkingum hleypt inn, varnargarðar hækkaðir og Bláa lónið opnar Vill fyrst og fremst fá að njóta ævikvöldsins í friði „Af hverju þetta brestur strax, það skiljum við ekki alveg“ Kort: Sprungan lengist til norðurs Strandveiðar bannaðar á morgun Gos í beinni, ósáttir Grindvíkingar og íbúum drekkt í steypu Alvarleg árás með hamri í Reykjavík Sýknaður af ákæru um að nauðga konu í afmælisveislu hennar Varað við fölsuðum töflum sem innihalda hættulega efnablöndu Gengu að gosinu og óku til Grindavíkur án þess að vera stöðvaðar Sjá meira