Ósamræmi í vinnubrögðum sýslumanna 21. mars 2005 00:01
Forstjóri Vinnumálastofnunar segir að yfirvöld hafi ekki haft ráðrúm til að hugsa til enda viðbrögð við að útlendingar starfi hér á landi án leyfis. Sýslumenn hafa sinn háttinn á eftir því hvort þeir starfa á Vestur- eða Austurlandi. Engar samræmdar reglur eru til um það hvernig taka skuli á málum erlendra verkamanna sem ráðnir eru með þjónustusamningi í gegnum starfsmannaleigur og hafa ekki atvinnuleyfi. Eins og fram hefur komið í fréttum Stöðvar 2 var vinna sjö Letta sem störfuðu í Ólafsvík stöðvuð þar sem þeir reyndust ekki hafa atvinnuleyfi. Austur á landi hafa fjórir lettneskir verkamenn í sömu stöðu lengi fengið að vinna óáreittir. Finnbjörn Hermannsson, formaður Samiðnar, gagnrýnir þetta harðlega. Hann segir þetta farið að hafa áhrif á félagslegu kjör síns fólks, m.a. hvað varðar atvinnuöryggi. Því vill hann að erlendir starfsmenn falli undir íslensk lög og kjarasamninga svo þeir séu ekki með félagsleg undirboð. Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar, segir að ekkert óeðlilegt sé að stjórnvöld þurfi tíma til umhugsunar þegar svona ný vandamál blasi við. Samkvæmt Vinnumálastofnun gilda þjónustusamningar ekki fyrir venjulega iðnaðarmenn og án atvinnuleyfis hafa þeir ekki heimild til að vinna. Gissur segir að dæmi séu um svokallaða gerviverktaka sem ruddu sér til rúms fyrir nokkrum árum. „Henni (starfseminni) var svo að segja útrýmt með samræmdum vinnubrögðum og ég hef enga trú á öðru en að þetta ættum við að geta gert hvað þetta varðar,“ segir Gissur.
Fréttir Innlent Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Fleiri fréttir „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China setur beint flug í sölu Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Sjá meira