Undrandi á fræðimönnum 18. mars 2005 00:01 "
Það kemur mér mikið á óvart að heyra að vísinda- og fræðimenn séu ábyrgir fyrir úttekt af þessu tagi," segir Jörgen Niclasen, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra Færeyja. Að hans mati koma fram ýmsar rangfærslur í erindi fjögurra fræðimanna við Háskóla Íslands um muninn á færeyska sóknardagakerfinu og íslenska kvótakerfinu. Úttektin sem Jörgen gagnrýnir er samantekt fjögurra hagfræðinga við Háskóla Íslands; þeirra Axels Hall, Ásgeirs Jónssonar, Sveins Agnarssonar og Tryggva Þórs Herbertssonar, um staðreyndir og staðleysur um íslenska kvótakerfið. Í úttektinni er gerður samanburður á færeyska sóknardagakerfinu og íslenska kvótakerfinu og þar fara þeir að mati Jörgens með slíkar rökleysur að það minnir á áróður. "Aðalatriðið er að þeir halda því fram að fiskistofnar við Færeyjar hafi verið ofnýttir allan tíunda áratuginn. Slíka yfirlýsingu geta þeir þó ekki sannað með vísindalegum rökum og málið er alls ekki svona einfalt. Staðreyndin er í stuttu máli að sá fiskur sem veiddist kringum 1990 var afar magur, sem benti til að æti væri af skornum skammti. Á þessu gekk næstu árin, fiskurinn minnkaði og þeim fækkaði þar sem fiskar borða hvern annan ef ekkert annað er á boðstólum. Fyrir því eru aðeins tvær ástæður mögulegar. Í fyrsta lagi að mikill skortur hafi verið á ljósátu, sem er ein aðalfæða ungfiska. Sé það ástæðan er ómögulegt að kenna manninum eða fiskiveiðistefnu um. Hin ástæðan er sú að of margir fiskar hafi verið um hituna og sé það ástæðan er ekki hægt að kenna ofveiði um heldur þvert á móti." Jörgen segir einnig að aðrar staðreyndavillur séu í málatilbúnaði hagfræðinganna úr Háskólanum. "Þar er sagt að Færeyingar hafi tekið upp kvótakerfi 1992 og sóknardagakerfi ári seinna. Þetta er rangt. Kvótakerfið var tekið upp 1994 og sóknardagakerfið tók við 1996. Mér finnst eðlilegt að fræðimenn hafi slík atriði á hreinu þegar gerð er fræðileg úttekt á málum sem þessum."
Fréttir Innlent Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Rubio lentur á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira