Enginn með viðlíka samning 18. mars 2005 00:01
Enginn framkvæmdastjóra stærstu lífeyrissjóða landsins er með viðlíka starfslokasamning og fyrrverandi framkvæmdastjóri Sameinaða lífeyrissjóðsins. Þó er ein meginröksemdin fyrir samningnum að kjörin hafi átt að vera jafn góð og hjá starfsmönnum í svipuðum stöðum. Eins og fram kom í fréttum í gær mun fyrrverandi framkvæmdastjóri Sameinaða lífeyrissjóðsins fá full laun í tvö og hálft ár frá því honum var sagt upp störfum á dögunum. Þetta kostar sjóðinn 43 milljónir króna á tímabilinu. Hallgrímur Gunnarsson, framkvæmdastjóri Ræsis, var stjórnarformaður sjóðsins árið 2000 þegar samningurinn var gerður. Hallgrímur vildi ekki koma í viðtal en sagði að þegar gengið væri frá svona launakjörum væri heildarpakkinn skoðaður. Hann sagði það koma sér á óvart að núverandi stjórn hefði ekki vitað um samninginn en sagði ekkert óeðlilegt við hann samanborið við kjör manna í svipuðum stöðum. En bíðum við. Hverjir eru í svipuðum stöðum? Sameinaði lífeyrissjóðurinn er fimmti stærsti lífeyrissjóður landsins. Gunnar P. Pálsson, varaformaður stjórnar Lífeyrissjóðs verzlunarmanna, næststærsta lífeyrissjóðs landsins, segist hafa spurst fyrir um þetta mál hjá sínum sjóði og samkvæmt hans upplýsingum hafi framkvæmdastjórinn sex mánaða gagnkvæman uppsagnarfrest. Ari Edwald, varaformaður stjórnar Lífeyrissjóðsins Framsýnar, þriðja stærsta lífeyrissjóðs landsins, segir framkvæmdastjórann þar einnig hafa haft sex mánaða uppsagnarfrest og Árni Guðmundsson, framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs sjómanna, fjórða stærsta lífeyrissjóðsins, segir engan starfslokasamning gilda þar. Þar sé eins og hjá hinum sjóðunum bara venjulegur sex mánaða uppsagnarfrestur. Og framkvæmdastjóri LSR, stærsta lífeyrissjóðs landsins, er með þriggja mánaða uppsagnarfrest. Spurður um þennan samanburð á kjörum manna í svipuðum stöðum vildi Hallgrímur ekkert segja og lagði símtólið á.
Fréttir Innlent Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Rubio lentur á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Sjá meira