Lyfjakostnaður gæti verið lægri 14. mars 2005 00:01
Ætla má að greiðslur almannatrygginga hefðu verið ríflega þremur milljónum króna lægri dag hvern allt síðasta ár ef smásöluverð lyfja væri það sama hér á landi og í Danmörku. Samt hefur kostnaður Tryggingastofnunar vegna söluhæstu lyfjanna dregist saman á milli ára. Greiðslur Tryggingastofnunar ríkisins fyrir tíu söluhæstu lyfin voru um 1,7 milljarðar króna á síðasta ári. Þá er ótalinn hlutur sjúklings í lyfjakaupunum. Stofnunin hefur borið saman smásöluverð á þessum tíu lyfjum á Íslandi og í Danmörku. Öll eru lyfin dýrari hér, allt frá 1,8 prósentum upp í 1145 prósent eins og blóðfitulækkandi lyfið Zivacor. Það er íslenskt samheitalyf frá Actavis. Íslendingar borga meira en 10 þúsund krónur fyrir pakkninguna en Danir borga 807 krónur. Gera má ráð fyrir að greiðslur almannatrygginga hefðu lækkað um rúmlega 300 milljónir króna, eða að meðaltali tæplega 18 prósent, fyrir tíu söluhæstu lyfin ef sama smásöluverð gilti hér og í Danmörku. Það er um 820 þúsund króna sparnaður dag hvern allt síðasta ár. Samt hefur kostnaðurinn dregist saman milli ára hjá Tryggingastofnun. Inga J. Arnardóttir, deildarstjóri lyfjamála hjá Tryggingastofnun ríkisins, segir að ef heilbriðgisráðherra hefði ekki gert samninga í fyrra um verðlækkun á lyfjum hefði kostnaður stofnunarinnar sennilega verið 250 milljónum króna meiri. Hér er aðeins verið að tala um 10 söluhæstu lyfin en heildarkostnaður almannatrygginga vegna lyfja nam rúmum 6,4 milljörðum á síðasta ári. Ef við gefum okkur áfram að lyfin séu að meðaltali 18 prósentum lægri í Danmörku en hér þá væri kostnaður ríflega þremur milljónum króna minni dag hvern ef smásöluverð lyfjanna væri það sama hér og í Danmörku.
Fréttir Innlent Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Fleiri fréttir Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Sjá meira