Innlent

Þeir sáu minnst sem borguðu mest

Þeir sáu minnst sem borguðu mest á sýningu Pilobolus-dansleikhópsins í Laugardalshöllinni í gærkvöld. Einhverjir gestir sem áttu sæti næst sviðinu gengu út en aðrir létu sig hafa það að sitja á gólfinu eða standa til að sjá sýninguna. Skipuleggjendur segjast miður sín og taka vel á móti óánægðum gestum. Sætin næst sviðinu niðri á gólfinu á Laugardalshöllinni kostuðu 7800 krónur. Það er eðlilegt að ætla að fólk hafi gert ráð fyrir að sjá á sviðið fyrir þann pening. Sætin voru hins vegar ekki á upphækkunum á sýningu Pilobolus-dansleikhópsins í gærkvöldi þannig að þeir sem sátu aftar en á fyrsta bekk máttu búa við skerta sjónlínu. Í fyrsta atriði sýningarinnar virkuðu sjónvarpsskjáir svo ekki þannig að þegar dansararnir lágu á gólfinu og léku listir sínar þurfti stór hluti gesta að standa upp til að sjá nokkuð. Ísleifur B. Þórhallsson hjá Event ehf. sem skipulögðu sýninguna segist hafa treyst öðru fólki til að að sjá um tæknilegu hlutina. Hann segir þetta nokkurt „sjokk“ og kveðst munu endurgreiða þeim sem þess óski. Hann segir fimmtán manns hafa gengið út í upphafi sýningar og sextíu skrifað sig á eins konar óánægjulista Þetta er alveg klárt dæmi um það hversu mikil þörf er fyrir almennilegt tónleika- og sýningarhús sem getur tekið um tvö þúsund gesti eins og voru reiðubúnir að borga sinn inn á sýninguna í gær. Ísleifur segir það hins vegar enga afsökun - ef menn ætla að standa fyrir svona sýningum þá verði menn að gera það vel. .



Fleiri fréttir

Sjá meira


×