Fyrirtæki meta sjálf líkur á slysi 10. mars 2005 00:01
Mat á líkum á slysum í efnaverksmiðjum í byggð eru í höndum fyrirtækjanna sjálfra sé framleiðsla þeirra undir ákveðnum mörkum. Víðir Kristjánsson, varaformaður Stórslysanefndar, segir það eiga við í tilviki Mjallar Friggjar sem framleiðir klór á Akureyri. Hann segir klórframleiðslu fyrirtækisins þurfa að vera rétt um helmingi meiri svo hættumat verði framkvæmt undir eftirliti óháðra aðila, nema Slökkvilið Akureyrar óski þess sérstaklega. "Stórslysanefndin er ekki eftirlitsaðili heldur sér hún til þess að fyrirtækið hafi stefnumarkandi skjal sem er nokkurskonar mat á áhættu," segir Víðir. Nefndin eigi eftir að fara yfir skjalið en það hafi verið lagt fyrir hana áður, þegar fyrirtækið starfaði í Reykjavík. Slökkvilið Akureyrar hefur áætlaði að leki eitt stórt klórgashylki í verksmiðju Mjallar Friggjar yrði að loka og rýma um 300 metra radíus frá húsinu. Á því svæði eru 200 íbúar. Einnig þarfað aðvara fólk og vernda svæði undan vindi í allt að 2,7 kílómetra fjarlægð. Mest geta tólf tonn verið í verksmiðjunn. Hvert þrýstihylki vegur eitt tonn. Erling Þór Júlínusson, slökkviliðsstjóri á Akureyri, segir greinilegt að fyrirtækið Mjöll Frigg ætli að standa vel að sínum málum. Slökkviliðið sjái því ekki ástæðu til að krefjast frekara hættumats. "Við verðum að gæta sannmælis og réttar starfseminnar. Við megum ekki mismuna fyrirtækinu þannig að við séum að gera til þeirra meiri kröfur heldur en við getum stutt með lögum og reglugerðum," segir Erling. "Þau drög af stefnumarkandi skjali sem við höfum í höndum er mjög gott. Það getur verið að við gerum einhverjar athugasemdir við það en skjalið er vel fram sett af fyrirtækinu," segir Erling. Þá sé það hlutverk slökkviliðins að bregðast við komi eitthvað upp á en forvarnir séu vinnueftirlitsins og heilbrigðiseftirlits. Áhættumat hefur verið unnin fyrir olíubirgðastöðurnar í Örfirisey og Króksfjarðarnesi og gasframleiðslu í Straumsvík.
Fréttir Innlent Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira