Innlent

Óttast sömu þróun og í fiskvinnslu

Formaður Samiðnar óttast svipaða þróun í iðngreinum og fiskvinnslu, það er að útlendingar verði í meirihluta þeirra sem starfa við greinarnar. Hann segir þróun í slíka átt þegar hafna. Talið er að að af þeim sem starfa sem iðnaðarmenn á höfuðborgarsvæðinu séu um 15 prósent útlendingar. Þeim fer sífellt fjölgandi. Á sama tíma hefur iðnnemum hér á landi fækkað og svo er komið að enginn sækist eftir námi í sumum greinum. Finnbjörn A. Hermannsson, formaður Samiðnar, segir að í blikksmíði hafi erlendir starfsmenn og ófaglærðir íslenskir starfsmenn starfað hvað lengst og merkjanleg fækkun sé á iðnnemum í því fagi. Aðspurður hver skýringin sé segir Finnbjörn að fyrirtæki skuldbindi sig ekki til einhvers tíma til að vera með iðnnema og þau geti leyst sín vandamál með því að fá tímabundna starfsmenn að utan og þau velji það fremur en að taka iðnnema. Hjá Stjörnublikki í Kópavogi starfa t.d. aðallega pólskir blikksmiðir sem ráðnir eru í gegnum erlenda starfsmannaleigu. Að sögn sögn verkstjóra fyrirtækisins, Friðbjörns Steinssonar, fá þeir greidd laun samkvæmt kjarasamningi en ef hann hefði íslenska blikksmiði í vinnu fengju þeir á milli 250 til 300 þúsund krónur í mánaðarlaun. Friðbjörn segir ekkert því til fyrirstöðu að ráða íslenska blikksmiði eða taka nema á samning en þeir fáist einfaldlega ekki. Formaður Samtaka iðnaðarins segir hins vegar að áhugi sé fyrir hendi hjá mörgum Íslendingum en þeir komist einfaldlega ekki að. Hann óttast að sama þróun verði í öðrum iðngreinum og það gæti haft veruleg áhrif á íslenskan byggingariðnað. Það þýði fyrir almenning að vöruvöndun muni hraka.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×