Margrét Sverrisdóttir ber af 10. mars 2005 00:01
Matthías Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, var í hópi fundarmanna á flokksþingi Frjálslynda flokksins á Kaffi Reykjavík um síðustu helgi. Matthías hefur verið í flokknum svo að segja frá stofnun hans og skipaði meðal annars heiðurssætið í Norðvesturkjördæmi í síðustu kosningum. "Þetta var ágætur fundur. Flokkurinn er vaxandi og ég er bjartsýnn á framtíðina. Ég tel að hann eigi fullt erindi og það gæti vel farið svo að hann kæmist í oddaaðstöðu eftir næstu kosningar," segir Matthías. Hann sat á þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn í 32 ár og var ráðherra í átta ár. Hann fylgdi svo félaga sínum, Sverri Hermannssyni, þegar hann stofnaði Frjálslynda flokkinn í aðdraganda kosninganna 1999. Matthíasi líst vel á forystu flokksins en hún var endurkjörin eftir snörp átök um varaformannsembættið. "Það er margt gott fólk þarna en Margrét Sverrisdóttir ber samt af," segir hann. Á flokksþinginu upplýsti Guðjón Arnar Kristjánsson formaður að Matthías og Sverrir Hermannsson væru honum til ráðgjafar í störfum stjórnarskrárnefndar sem hann situr í fyrir hönd flokksins. Matthías segir það rétt að því marki að hann hafi upplýst Guðjón Arnar um störf stjórnarskrárnefndarinnar sem hann sjálfur sat í um og upp úr 1980. "Þá var lítið gert með störf nefndarinnar. Við unnum ágætis vinnu en þeir sem réðu, forvígismenn stjórnarflokkanna, gerðu ekkert með tillögur okkar." 57 ár eru liðin síðan Matthías sat fyrst ámóta fund hjá stjórnmálaflokki, það var landsfundur Sjálfstæðisflokksins 1948 en þá var Ólafur Thors formaður. "Það er langt síðan. Svona er það þegar menn lifa jafn andskoti lengi og ég," segir Matthías og glottir en hann er á áttugasta og fjórða ári. Og að sögn við ágæta heilsu með bæði sjón og heyrn í góðu lagi.
Fréttir Innlent Mest lesið Ökumaður bifhjólsins látinn Innlent Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Innlent Lögreglan lýsir eftir Arnari Hauki Innlent Ísland leggur til fólk í finnskar herstöðvar Innlent Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Innlent „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Innlent „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Innlent „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Innlent Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Innlent Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja Innlent Fleiri fréttir Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Lögreglan lýsir eftir Arnari Hauki „Skýr vísbending um að gera þurfi betur í málefnum erlendra barna“ Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Reiðarslag fyrir Landsvirkjun, kjarnorkukafbátur og heimsfræg íslensk kisa „Í næstu umferð fara hlutirnir í gegn“ Tilkynnt um buxnalausan mann og stolinn pizzaofn „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Davíð hafi lagt Golíat Hlaup er hafið úr Mýrdalsjökli Ökumaður bifhjólsins látinn Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Flugvél snúið við vegna bilunar „Enn ein viðurkenning að það má brjóta á fötluðu fólki“ Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Bíða niðurstaðna um magakveisuna á Laugarvatni Dómurinn vonbrigði en virkjunin ekki út úr myndinni Kona á fimmtugsaldri í haldi vegna hnífstunguárásar „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Hvammsvirkjun í uppnámi og ókyrrð hjá Play Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Inga Sæland með galsa á þingi í nótt „Orðaskiftismetið tikið“ Bifhjólamaðurinn „mikið slasaður“ Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Ungt fólk notar frekar samfélagsmiðla en hefðbundna fréttamiðla Stór meirihluti þjóðarinnar hlynntur veiðigjaldafrumvarpinu „Þú ert mögulega búin að nota gagnaver 400 sinnum síðan í morgun“ Sjá meira