Innlent

Reglugerð um spilakassa gefin út

Dóms- og kirkjumálaráðuneytið hefur gefið út reglugerð fyrir Íslenska söfnunarkassa sem starfrækja söfnunarkassa til fjáröflunar fyrir Rauða Kross Íslands, Slysavarnarfélagið Landsbjörgu og SÁÁ, undir heitinu Íslandsspil. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu. Í reglugerðinni er hnykkt á því að aldursltakmark til að spila í kössunum er 18 ára og að yngri þátttakendur en 18 ára eigi ekki tilkall til vinninga. Þá er í reglugerðinni kveðið á um staðsetningu spilakassa og að virkt eftirlit skuli vera með þeim. Þeir skulu m.a. vera þannig að unnt sé að slökkva á þeim fyrirvaralaust ef þörf er talin á því. Einnig er tilgreint hversu mikið sé unnt að leggja undir í hverju spili, hverjir vinningar eru og að vinningshlutfallið skuli vera að lágmarki 89 prósent af verðmæti innborgaðra leikja. Enn fremur er sett skilyrði um tölvukerfi Íslandsspila sem heldur utan um mælastöður, fjárhagsupplýsingar og fleira. Loks ber að nefna að Íslandsspil skulu greiða kostnað af eftirliti með starfrækslu kassanna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×