Gæti skaðað ímynd Íslands 8. mars 2005 00:01 "
Frá markaðslegu sjónarmiði mun þróun og ræktun á erfðabreyttum lífverum eða matvælum hafa áhrif á þá ímynd sem við viljum byggja upp af landinu okkar," segir Baldvin Jónsson, verkefnisstjóri hjá Bændasamtökunum. Baldvin er einn þeirra sem telja að stíga verði varlega til jarðar þegar kemur að rannsóknum, þróun og ræktun á erfðabreyttum lífverum og matvælum ellegar geti ímynd Íslands erlendis hlotið hnekki. Baldvin stýrir átaksverkefni um framleiðslu og markaðssetningu vistvænna og lífrænna afurða og segist fá fyrirspurnir erlendis frá hvar Ísland standi hvað viðkemur erfðabreytingum. "Mín skoðun er sú að flýta verður sér hægt enda eru erfðabreytingar mjög í umræðunni erlendis og yfirleitt með neikvæðum formerkjum. Ég er ekki á móti rannsóknum af því tagi sem hér eiga að fara fram enda hluti af framtíðinni en ég spyr hvort þetta sé bráðnauðsynlegt verkefni á þessari stundu." Júlíus B. Kristinsson, framkvæmdastjóri ORF-Líftækni, en fyrirtækið sérhæfir sig í þróun á erfðabættum plöntum til framleiðslu á sérvirkum próteinum, segist kunnugur þeim gagnrýnisröddum sem heyrst hafa. Hann fullyrðir að eftirlit með ræktuninni sé afar strangt og engar rannsóknir bendi til að hætta sé á víxlverkun erfðabreyttu byggplöntunar hérlendis. "Skilyrði hér á landi fyrir ræktun byggs eru afar góð og hætta á víxlverkun í náttúrunni lítil sem engin enda plantan mjög afmörkuð. Hún þarf ummönnun til að lifa og við höfum enga plöntu fundið sem lifir lengur en eitt ár án sáningar og áburðar." Hann fagnar allri faglegri umræðu um málið en segir staðreyndirnar tala sínu máli. "Það má segja að um storm í vatnsglasi sé að ræða enda værum við ekki að vinna að þessu verkefni ef einhver hætta væri fyrir hendi. Áhugasamir þurfa aðeins að skoða staðreyndir málsins til að sjá að erfðabreytingar er nytsöm og þörf tækni og gefur gríðarlega möguleika." Byggfræ eru afbragðs uppspretta próteins og hægt að geyma líftækniprótein í fræjunum í langan tíma. Þetta þykir lykilatriði við framleiðsluna og ástæða þess að ORF-Líftækni vill þegar fram líða stundir nýta 6000 hektara lands undir framleiðslu sína.
Fréttir Innlent Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira