Innlent

Hóta japanska ríkinu lögsókn

"Þó að hjól réttvísinnar snúist hægt á Íslandi snúast þau enn hægar hér," segir Einar S. Einarsson, fyrrverandi forseti Skáksambands Íslands, sem nú er staddur í Japan. Í gær var haldinn blaðamannafundur, þar sem meðal annars kom fram að ef japönsk stjórnvöld hafi ekki sleppt Fischer á föstudag verði þau lögsótt. John Bosnitch, formaður Frelsum Bobby Fischer nefndarinnar, sagði í viðtali við Fréttablaðið að nokkrar leiðir væru færar til lögsóknar. Farið verði fram á lögbann gegn því að Fischer verði haldið í innflytjendabúðunum. Með því verði Fischer frjáls ferða sinna innan Japan, þó hann geti ekki farið úr landi. Slíkt ferli gæti tekið tvær til þrjár vikur. Þá verður farið fram á það við dómstóla að Fischer verði sleppt. Ef þetta gengur ekki eftir verður höfðað mál í Bandaríkjunum, þar sem farið verður fram á að Fischer verði sleppt úr haldi, þar sem honum sé haldið að ósk Bandaríkjamanna. "Við höfum undir höndum bréf frá bandaríska heimavarnarráðuneytinu, þar sem farið er fram á að hann verði gripinn, hvar sem hann næst." Einar segir að dvölin hafi verið Fischer erfið. Tíminn sé lengi að líða við svona aðstæður. Einar og Sæmundur Pálsson muni heimsækja Fischer á morgun, á afmæli skákmeistarans. "Þó að farmiðinn og vegabréfið séu hans afmælisgjöf munum við færa honum eitthvert lesefni." Íslenska sendinefndin ætlaði að fara heim í gær, en nú er búist við hún haldi heim á fimmtudag. "Nema einhver hreyfing komist á þetta. Annars getur það hæglega tekið viku til tíu daga að fá hann lausan, ef gengist verður inn á að sleppa honum. Ef ekki verður gengið við þessu fara ný mál í gang sem geta tekið vikur eða mánuði. Með þessu móti er búið að jafna taflið, en skákin er ekki búin." Einar segir að sigurlíkur hafi þó aukist og það muni valda mikilli hneykslun víða ef Fischer verði ekki sleppt. Bosnitch segir að með því að fá vegabréfið afhent hafi nýir möguleikar opnast til að fá stuðning alþjóðasamfélagsins. Nú verði leitað til þekktra skák- og listamanna, auk annarra, til að hefja upp rödd sína gegn þessu mótlæti.
Af blaðamannafundinum Garðar Sverrisson, John Bosnitch, Einar S. Einarsson og Miyoko Watai tóku til máls á blaðamannafundinum í gærEinar S. Einarsson



Fleiri fréttir

Sjá meira


×