Innlent

Forval hafið vegna Háskólatorgs

Háskóli Íslands hefur fengið grænt ljós á forval vegna gerðar svokallaðs Háskólatorgs, þjónustumiðstöðvar stúdenta sem tengja á byggingar háskólasvæðisins. Í forvalinu eru valdir hópar sem fá að skila inn tilboðum í verkið. Páll Skúlason rektor greindi frá því í brautskráningarræðu 26. febrúar að framlag Háskólasjóðs Eimskipafélagsins gerði Háskólanum kleift að hefja framkvæmdir nú. "Það er að komast skriður á málið," segir Guðrún Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Félagsstofnunar stúdenta, sem sæti á í nefnd Háskólans um gerð torgsins. "Ingjaldur Hannibalsson, formaður nefndarinnar, tilkynnti á síðasta fundi að samráðsnefnd um opinberar framkvæmdir hefði gefið vilyrði fyrir því að forval gæti farið fram og það var auglýst á evrópska efnahagssvæðinu þriðja þessa mánaðar." Háskólatorgið, sem á að vera tilbúið um áramótin 2007/2008, á að hýsa matsölu og alla þjónustu við stúdenta undir einu þaki. "Þjónustuhús Háskólatorgsins verður milli gamla íþróttahússins og aðalbyggingarinnar," segir Guðrún, en frá torginu verða tengibyggingar yfir í öll húsin auk þess sem farið verður undir Suðurgötuna til að tengja vestur- og austursvæði Háskólans.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×