Gæslan virðist brjóta lög 4. mars 2005 00:01
Landhelgisgæslan, sem hefur með höndum almenna löggæslu og eftirlit á hafinu umhverfis Ísland, virðist brjóta lög um mengunarvarnir. Þá greiðir hún hvorki virðisaukaskatt né opinber gjöld af skipaolíu sem hún kaupir í sparnaðarskyni í Færeyjum. Varðskipin, sem eru iðulega við gæslu á hafsvæðinu milli Íslands og Færeyja, hafa siglt með olíu sem keypt er í Færeyjum til Reykjavíkurhafnar og dælt á varðskipið Óðinn sem alltaf liggur þar til taks. Þessu lýsti Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgælsunnar, í samtali við fréttamann fyrr í vikunni. Ekki verður betur séð en að með þessu brjóti Landhelgisgæslan mengunarvarnarreglur. Til að koma í veg fyrir mengunarslys eru afar strangar kröfur gerðar ef dæla á olíu milli skipa við höfn. Í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 í dag sagðist hafnarstjóri ekki kannast við að Landhelgisgæslan hefði sótt um slíkt leyfi, hvað þá fengið það. Reyndar hafði hann ekki hugmynd um að það tíðkaðist að dæla olíu milli varðskipa við Reykjavíkurhöfn. Þessar tilfæringar koma til vegna þess að Gæslan kýs að kaupa skipaolíu í Færeyjum, að sögn forstjóra hennar vegna þess hversu illa íslensk olíufélög hafi farið með Gæsluna. Þessi háttur hefur nú verið hafður á í hátt á þriðja ár. Georg segir að Landhelgsigæslunni sé þröngt sniðinn stakkur og það sé alls ekki gott að hafa þurft að borga alltof mikið fyrir olíu í gegnum árin. Verið sé að reyna að bregðast við því með einhverjum hætti og því kaupi Gæslan ekki olíu af íslenskum olíufélögum nema brýna nauðsyn beri til. Forstjórinn segir að 14 milljóna króna sparnaður hafi náðst með þessu fyrirkomulagi á síðasta ári. Lítill sem enginn verðmunur er þó á skipaolíu í Færeyjum og á Íslandi. Oft er hann enginn og mestur fer hann í eitt til tvö prósent. Sparnaður Landhelgisgæslunnar virðist því felast í því að hún greiðir ekki virðisaukaskatt við innflutning olíunnar til Íslands. Það myndi hún hins vegar verða að gera ef olían væri keypt hér á landi. Þar sem gæslan er rekin með fjármunum úr sjóðum landsmanna virðist sparnaðurinn felast í því að færa til fjármuni í ríkissjóði. Landhelgisgæslan hefur ekki heldur staðið skil á svokölluðu flutningsjöfnunargjaldi sem kveðið er á um í tollalögum. Gjaldið nemur 77 aurum af hverjum keyptum lítra. Snorri Olsen tollstjóri vildi ekki tjá sig sérstaklega um málefni Landhelgisgæslunnar þegar eftir því var leitað í dag. Hann sagði þó að síðustu árarugi hefði það tíðkast að skip, sem ekki stunduðu vöruflutninga og hefðu komið með olíu frá útlöndum til eigin nota, væru ekki látin gera grein fyrir þeim kaupum eða greiða opinber gjöld. Óljóst er hvaða heimild Tollstjóraembættið hefur í lögum til að sjá í gegnum fingur sér með innheimtu opinberra gjalda, aðra en hefð. Tollstjóri sagði þó að standa ætti skil á gjöldum ef olíu væri dælt á milli skipa líkt og forstjóri Landhelgisgæslunnar hefur staðfest að hún geri.
Fréttir Innlent Mest lesið Aron Can heill á húfi Innlent Epstein-skjölin og Trump: Eitthvað virðist rotið í Danaveldi Erlent Ísraelskur ráðherra kynnir áform um þjóðernishreinsun á Gasa Erlent Hundurinn gerði vart um mann sem stóð og starði inn Innlent Tekist á um þéttingu byggðar: „Þá getur þú bara flutt til Kaupmannahafnar“ Innlent Lögreglan leitar tveggja manna Innlent Ólíðandi að fá sektir aftur og aftur Innlent Amgen sver af sér njósnir um starfsfólk Íslenskrar erfðagreiningar Innlent Óánægja með stjórnarandstöðuna eykst hressilega Innlent „Sorglega lítið eftir“ þegar sundkappinn var stöðvaður Innlent Fleiri fréttir Hneig niður vegna flogakasts Tekist á um þéttingu byggðar: „Þá getur þú bara flutt til Kaupmannahafnar“ Lögreglan leitar tveggja manna Frakkar viðurkenna Palestínu og stjórnarandstaðan á Alþingi mælist illa í nýrri könnun Óánægja með stjórnarandstöðuna eykst hressilega Amgen sver af sér njósnir um starfsfólk Íslenskrar erfðagreiningar Hundurinn gerði vart um mann sem stóð og starði inn Hægt nokkuð á virkninni frá því í gærmorgun Aron Can heill á húfi „Sorglega lítið eftir“ þegar sundkappinn var stöðvaður Ljóst að stjórnarandstaðan græddi ekki á „kjarnorkuákvæðinu“ Ólíðandi að fá sektir aftur og aftur Svona vindmyllur vill ráðherra fá samþykktar ofan Gilsfjarðar Tónleikar stöðvaðir vegna veikinda Arons Can Launaði neitun á gistingu með löðrungi Óvinsældir eftir þinglok og meint leyndarmál frönsku forsetahjónanna Innan við þriðjungur andvígur olíuleit Ætlar fyrir Mannréttindadómstólinn og segir fréttaflutning villandi Gasútstreymi minnkandi en gosmóðu enn spáð Vínsalar látnir klára vakt eftir andlát í versluninni Annar stór skartgripaþjófnaður í miðborginni „Ef þú móðgaðist, þykir mér það leitt“ Spellvirkinn líka grunaður um líkamsárás og mansal Staða Sjálfstæðisflokksins versnar eftir þinglok Hóteleigendur vilja byggja á verndarsvæði og ábúendur ekki sáttir Sjálfstæðisflokkur sjaldan mælst minni Þurfti að hætta sundi af öryggisástæðum Gylfi Ægisson er látinn Hundruð kvenna einmana: „Er skrýtið að eiga engar vinkonur?“ Ekið á ökumann rafmagnshlaupahjóls og gámur á hliðina Sjá meira