Erlent

Búist við flutningi Sýrlandshers

Búist er við að Bashar al-Assad, forseti Sýrlands, tilkynni á morgun að hluti herliðs Sýrlendinga í Líbanon verði kallaður heim. Reuters-fréttastofan hefur þetta eftir ónafngreindum stjórnmálamanni í Líbanon í dag sem segir enn fremur að þær sveitir sem eftir verða í landinu verði færðar nær landamærum Sýrlands og Líbanons. Mjög hefur verið þrýst á Sýrlendinga að kalla herlið sitt heim frá Líbanon í kjölfar morðsins á Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons, í síðasta mánuði og gær bættust bandamennirnir Sádi-Arabía og Egyptaland í hóp gagnrýnenda Sýrlands.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×