Erlent

Alnæmisvá vofir yfir Afríku

Nærri 90 milljónir Afríkubúa gætu smitast af alnæmi á næstu tuttugu árum ef alþjóðasamfélagið grípur ekki til aðgerða þegar í stað. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá Sameinuðu þjóðunum. Þar segir að tvö hundruð milljarða bandaríkjadala þurfi til á næstu árum eigi að takast að sporna við þessari þróun. 25 milljónir Afríkubúa eru nú þegar smitaðar af HIV-veirunni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×