Erlent

Hart sótt að Sýrlendingum

Enn eykst þrýstingur á stjórnvöld í Sýrlandi að hverfa með herlið sitt burt frá Líbanon. Í gærkvöldi bættust Sádi-Arabar og Egyptar í hóp þeirra þjóða sem vilja að Sýrlendingar hætti afskiptum sínum af Líbanon. Sýrlendingar höfðu vonast eftir stuðningi Sáda á fundi Arababandalagsins í gær en öllum að óvörum sagði leiðtogi þeirra að hann teldi tímabært að Sýrlendingar létu Líbani í friði. Í gær lýsti utanríkisráðherra Rússa yfir sömu skoðun og virðist einangrun Sýrlendinga orðin algjör. Á blaðamannafundi í Washington í gær sagði George Bush Bandaríkjaforseti svo enn og aftur að Sýrlendingum væri ekki til setunnar boðið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×