Barðist gegn kerfinu 3. mars 2005 00:01
Áfrýjunardómstóll í Bretlandi hefur úrskurðað að skólayfirvöldum í Luton hafi verið óheimilt að banna unglingsstúlku að klæðast íslömskum búningi í skólanum. Dómurinn þykir mikill sigur fyrir múslima sem telja sig víða eiga undir högg að sækja eftir að stríðið gegn hryðjuverkum hófst. Shabina Begum, sextán ára, hefur í tvö ár barist fyrir að mega klæðast svonefndum jilbab-búningi í skólanum en slíkur fatnaður hylur allan líkamann, að höndum og andliti undanskildum. Áttatíu prósent nemenda í Denbigh-skólanum í Luton eru múslimar. Auk hefðbundinna skólabúninga hefur stjórn skólans fram til þessa leyft stúlkum að klæðast shalwar kameez-búningi sem samanstendur af buxum og hnésíðri skyrtu. Árið 2002 ákvað Begum að slíkur fatnaður samræmdist ekki trú sinni og því ákvað hún að taka upp jilbab-búninginn. Skólastjórinn bar því hins vegar við að með því væri gert lítið úr þeim sem notuðu shalwar kameez-klæðin og því væri ekki hægt að leyfa henni þetta. Hún fór í annan skóla þar sem aðrar reglur giltu en höfðaði jafnframt mál gegn sínum gamla skóla. Hæstiréttur úrskurðaði skólanum í vil í fyrra þar sem Begam gat ekki sýnt fram á að brotið hefði verið á rétti hennar til náms en nú hefur áfrýjunardómstóll komist að annarri niðurstöðu. Í viðtali við Guardian sagðist Begam fagna niðurstöðunni mjög. "Dómurinn er sigur fyrir alla múslima sem vilja varðveita sérkenni sín þrátt fyrir fordóma og hræsni samfélagsins." Hún bætti því við að ákvörðun skólans endurspeglaði það andrúmsloft sem ríkir nú á Vesturlöndum eftir að stríðið gegn hryðjuverkum hófst eftir árásirnar 11. september 2001. Í fyrra bönnuðu frönsk yfirvöld öll trúarleg tákn í skólum og vakti bannið mikla reiði múslima. Nú virðast Bretar hafa farið aðra leið því dómurinn hefur þau áhrif að skólar um gervallt Bretland verða að breyta reglum sínum í þessum efnum.
Erlent Fréttir Mest lesið Óttast að boð og bönn ráðherra muni setja verslanir í þrot Innlent Bæta ekki fallvarnir við veginn: „Þetta er eilífur slagur“ Innlent Takmarkið „enn sem komið er“ ekki að steypa klerkastjórninni af stóli Erlent Þinglok hvergi í augsýn: „Málþóf! Málþóf!“ Innlent Segir komu írsku lögreglunnar marka tímamót í leitinni að Jóni Þresti Innlent Vinnuslys í Laugardal þar sem maður fékk járnstöng í andlitið Innlent Tékkneski og bandaríski herinn ásamt flugsystrum á Akureyri Innlent Lýsa eftir Hlyni Innlent Steypumót féll á starfsmann byggingarfyrirtækis Innlent Ísland tekur þátt í aðgerðum gegn skuggaflota Rússlands Innlent Fleiri fréttir Takmarkið „enn sem komið er“ ekki að steypa klerkastjórninni af stóli Árásir halda áfram meðan fundað er í Genf Hyggst eftirláta á annað hundrað börnum sínum Telegram-auðinn Skrefi nær því að leyfa dauðvona fólki að leita sér dánaraðstoðar Sporvagni ekið inn í matarvagn í Gautaborg Danskur ráðherra kann ekki að meta auglýsingar Meta Hafnar tillögu um að verja fimm prósentum í varnamál Utanríkisráðherrar funda um Íran í Genf Frestar aftur TikTok-banni Kynnti sér mögulegar árásir: „Að klára verkið þýðir að rústa Fordo“ Áhlaup ICE og óvissan veldur vandræðum Farið í gegnum „kolefnisþakið“ eftir þrjú ár Sagði Khamenei „nútíma Hitler“ og að markmiðið sé að fella hann Geimskipið sprakk á jörðu niðri Finnar draga sig út úr sáttmála gegn jarðsprengjum Leita „fjandskapar“ á samfélagsmiðlum námsmanna Tala látinna í Kænugarði komin í tuttugu og átta Tugir særðir í Ísrael eftir árás Írana á spítala Vill ekki í stríð en segir klerkastjórnina ekki mega eignast kjarnorkuvopn Staðfesta bann á meðferð trans barna Óttast um líf fjölskyldu sinnar í Íran: „Ég sef ekki á nóttunni“ Fjórtán tonna sprengjan sem Ísraela vantar „Kannski geri ég það, kannski geri ég það ekki“ Færðu barn heiladauðrar konu í heiminn Rekja rafmagnsleysið á Íberíuskaga til mistaka orkufyrirtækja Íranir hóta „óbætanlegu tjóni“ skerist Bandaríkin í leikinn Sænsk „sorpdrottning“ hlaut þungan fangelsisdóm fyrir umhverfisbrot Tugir drepnir á meðan þau biðu eftir matarskammti Árásum á Teheran fjölgar og enn einn hershöfðinginn felldur Loka bandaríska sendiráðinu í Ísrael Sjá meira