Innlent

Fékk ekki að hitta Fischer

Sæmundur Pálsson og Miyoko Watai, unnusta Bobby Fischer, fengu í gær ekki að hitta hann í innflytjendabúðunum þar sem Fischer er haldið. Sæmundur sagði í samtali við Fréttablaðið að þau hafi einungis fengið þær upplýsingar að af öryggisástæðum væri ekki hægt að heimsækja Fischer. Þau héldu að mögulega væri skýringin sú að sjónvarpstökulið var í för með Sæmundi og Miyoko, en þó væri ekki hægt að segja það með vissu. Enginn hafi fengið að hitta skákmeistarann í gær og hann taldi því mögulegt að aðrar ástæður lægju þar að baki. Vonandi fengist skýring á því í dag, hvers vegna af heimsókn gat ekki orðið. "Það var auðvitað leiðinlegt að geta ekki fengið að hitta hann. Sérstaklega vitandi það að hann talaði við kærustu sína kvöldið áður og hún sagði mér að hann væri mjög spenntur fyrir því að sjá mig." Fyrr um morguninn hafði Sæmundur hitt Þórð Ægi Óskarsson, sendiherra Íslands í Japan. Sæmundur segir að Þórður hafi rætt við Fischer í síma og viti um óþolinmæði Fischers gagnvart því að málið leysist. Þórður Ægir hafi hins vegar ekki rætt um að hitta Fischer. Eitt af því sem Sæmundur ræddi við sendiherrann var hvort ekki væri hægt að afhenda lögmanni Fischers vegabréfið, í stað þess að afhenda honum það persónulega. "Það er mín ósk og von til þess að pattstaðan leysist. Hann þarf vegabréf og dvalarleyfi til að losna úr innflytjendabúðunum, en þarf hins vegar að losna þaðan til að sækja vegabréfið og dvalarleyfið. Það gengur auðvitað ekki upp. Ég var mjög bjartsýnn á lausn þessa máls eftir að ég ræddi við Davíð á föstudag, en hann gat engu lofað mér." Sendinefnd á vegum stuðningsmanna Fischers hélt til Japan á þriðjudag og er von á þeim í dag. Hana skipa, auk Sæmundar Pálssonar, Garðar Sverrisson, fyrrverandi formaður Öryrkjabandalags Íslands, Guðmundur G. Þórarinsson verkfræðingur og Einar S. Einarsson, fyrrverandi forstjóri VISA. Mun sendinefndin halda blaðamannafund í Japan á morgun.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×