Nýja Helgafellið afhent 27. febrúar 2005 00:01
Nýtt 11 þúsund tonna skip Samskipa var afhent stjórn félagsins við hátíðlega athöfn í Hamborg á föstudag að viðstöddum Ólafi Davíðssyni sendiherra og fleiri gestum. Skipið hlaut nafnið Helgafell og leysir af hólmi gamla Helgafellið á siglingaleiðinni milli Íslands og Evrópu. Það kom í hlut Arneyjar Guðmundsdóttur, starfsmanns í mötuneyti Samskipa, að skíra nýja skipið en hún var valin til verksins úr hópi allra kvenkyns starfsmanna félagsins á Íslandi í happdrætti sem fram fór við vígslu nýrra höfuðstöðva Samskipa á dögunum. Fyrsta áætlunarferð nýja Helgafellsins verður 1. mars nk. frá Rotterdam og er það væntanlegt til hafnar í Reykjavík úr jómfrúarferðinni þann 9. mars. Skipið getur flutt 908 gámaeiningar (TEU), eða rúmlega 200 gámaeiningum meira en gamla Helgafellið, og burðargetan er allt að 11.143 tonn. Ganghraði skipsins er allt að 18,4 sjómílur á klst., það er 138 metra langt og 21 metra breitt og í áhöfn eru 11 menn, allt Íslendingar. Skipið er hins vegar skráð í Færeyjum af rekstrarlegum ástæðum.Stjórnendur Samskipa og stjórnendur Helgafellsins fyrir framan nýjasta skip Samskipaflotans: F.v. Ásbjörn Gíslason, forstjóri erlendis, Magnús Helgason yfirvélstjóri, Knútur G. Hauksson, forstjóri á Íslandi, Steingrímur Sigurgeirsson skipstjóri og Ólafur Ólafsson stjórnarformaður.MYND/Vísir
Fréttir Innlent Mest lesið Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Innlent Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Innlent Þriðja flugbrautin í Keflavík „rosalega dýr framkvæmd“ Innlent Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja Erlent „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Erlent „Við eigum að hækka verðið á sykri“ Innlent Engin vettlingatök hjá Röggu þegar Mummi sökk í jökulvatn Innlent Gerir ráð fyrir áframhaldandi hækkun bensínverðs Innlent Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Erlent Hormússund sagt lokað á ný Erlent Fleiri fréttir Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Þriðja flugbrautin í Keflavík „rosalega dýr framkvæmd“ „Við eigum að hækka verðið á sykri“ Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Gerir ráð fyrir áframhaldandi hækkun bensínverðs Óvissa, ólögleg sala á áfengi og ósk um ný hljóðfæri Karlabyltingin hefst í Mosfellsbæ Stebbi Jak sýknaður af ákæru um líkamsárás Fyrsta pallborð fyrir kosningarnar í maí: Mosfellsbær á sviðið Dönsk þyrla með franskri herflutningavél til Íslands Bandaríkjaforseti gangi fram líkt og götustrákur Á brattann að sækja fyrir aðildarsinna Gífurlegir hagsmunir í húfi ef tæknin kemst í rangar hendur Vísindi á vordögum: Af hverju er offita enn þá vandamál? Hættuleg framþróun gervigreindarinnar, vopnahlé og kosningapallborð Töluverð skautun í málefnum Ísraels og Palestínu Engin vettlingatök hjá Röggu þegar Mummi sökk í jökulvatn Tveir fluttir á sjúkrahús eftir að eldur kviknaði í bílskúr Hvenær verður hlaðvarp að fjölmiðli? Braut rúðu eftir að hafa verið synjað um starf Næturlokunin komi sér afar illa fyrir fjölda íbúa Boða til mótmæla við bandaríska sendiráðið Meirihluti þeirra sem taka afstöðu andvíg aðild að ESB Gefur ekki mikið fyrir yfirlýsingar Trump um útrýmingu Íran Vinna áfram að alþjóðahöfn og iðnaðarsvæði í Finnafirði Hegðun Trumps vonbrigði Vitað um tíu dauðsföll af völdum eldinga hér á landi Kosningaspá Vísis: Lítill munur á vinstri og hægri í borginni Nýstaðinn upp þegar bárujárnið fauk inn um svefnherbergisgluggann Rafmagnslaust var í hluta Seltjarnarness og Vesturbæjar Sjá meira