Innlent

Elur á leti nemenda

Niðurfelling samræmdra prófa er til þess fallin að ala á leti grunnskólanemenda, að mati Haraldar Ólafssonar prófessors. Hann segir að nær væri að fjölga samræmdum prófum, enda sé fjöldi nemenda húðlatur.  Félag grunnskólakennara leggur til við menntamálaráðuneytið að samræmd próf í grunnskólum verði lögð niður. Þau eru sögð gefa mjög takmarkaða mynd af hæfni nemenda og samræmd próf í 4. og 7. bekk leggi óeðlilegar kröfur á nemendur og geti haft mjög neikvæð áhrif á sjálfsmynd þeirra. Haraldur Ólafsson telur slík próf þó vera mikilvæga mælistiku fyrir kennara, nemendur og foreldra. Það sé í þessum könnunum í 4. og 7. bekk sem viðvörunarljósin kvikni ef eitthvað er að í kennslunni eða hjá nemendum og of seint ef það uppgötvast í lokaprófi í grunnskóla eða inntökuprófi í framhaldsskóla. Samræmd próf 10. bekkinga hljóta heldur ekki háa einkunn hjá Félagi grunnskólakennara, sem segir þau orðin markmið skólastarfs og stýring, í stað þess að vera uppbyggilegt mælitæki.  En Haraldar telur hættur vera samfara því að fella þau niður. Það sé hætta á því að kröfurnar fari ekki að miðast við getu nemandans heldur við það hvað nemandinn nenni að gera mikið. Og hann telur býsna marga grunnskólanemendur húðlata. Grunnskólakennarar leggja til að framhaldsskólar meti sjálfir hvort nemendur standist inntökuskilyrði. Í stað samræmdra prófa í 10. bekk væri hægt að bera fyrir þá stöðluð, greinandi stöðupróf sem nemendur gætu leyst þegar þeir væru reiðubúnir. Haraldur telur þó að þeir lötustu teldu sig aldrei tilbúna. Þá finnst honum eðlilegt að mikill hluti skólastarfs fari einmitt í undirbúning fyrir samræmd próf og ef eitthvað er mætti íhuga að fjölga samræmdum könnunum í 4. og 7. bekk.


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×