Líka í móðurhlutverki 21. janúar 2005 00:01
Vladimir Stanovko, rússneski læknirinn á Kárahnjúkum, segir að heimsóknirnar hafi verið svona margar vegna aðstæðna á staðnum, kulda og myrkurs, og á máli hans má skilja að verkamenn hafi ekki bara leitað sér læknis vegna slysa og sjúkdóma heldur hafi erlendu verkamennirnir komið "til að gráta", eins og hann segir glettnislega. Starfsfólk heilbrigðisstöðvarinnar hefur því verið í nokkurs konar móðurhlutverki auk lækninga- og hjúkrunarhlutverksins, hlustað á menn frá Suður-Evrópu og veitt þeim stuðning og uppörvun. Þetta telur Vladimir að hafi þó lagast mikið upp á síðkastið enda hafi fólk verið ráðið í samræmi við aðstæður. Heilsugæsluliðið á Kárahnjúkum skoðar alla starfsmenn sem koma frá löndum utan Evrópska efnahagssvæðisins og segja læknarnir að starfsmennirnir séu yfirleitt við góða heilsu. Athugasemdir hafi aðeins verið gerðar tvisvar, einu sinni hafi fundist fæðingargalli hjá manni og einu sinni hafi fundist berklar. Allir geti starfað á Kárahnjúkum nema hjartasjúklingar, lungnasjúklingar og menn með liðasjúkdóma. "Ég átti von á þunglyndi, kvíða og þess háttar einkennum hjá mönnunum," segir Þorsteinn, "en það fólk fer fljótt. Mennirnir reykja bara of mikið." Heilsugæslustöðin á Kárahnjúkum hefur sólarhringsvakt og þangað koma menn í læknisskoðun, fá lyf og geta fengið fyrstu hjálp ef þörf krefur. Á nóttunni eru menn kallaðir út eftir þörfum. Ef lyfin eru ekki til á staðnum er sendur lyfseðill til Egilsstaða og þaðan fæst lyfið samdægurs. Sautján menn starfa nú á heilsugæslustöðinni. Þorsteinn Njálsson læknir er fulltrúi Heilbrigðisstofnunar Austurlands og hann sinnir yfirstjórn. Næstur honum er rússneskur læknir, Vladimir Stanovko. Til viðbótar eru svo hjúkrunarfræðingar, bæði íslenskir og erlendir, og sjúkraflutningamenn. Bílaflotinn er ekki af lakara taginu og sjúkrabílarnir geta tekist á við erfiðustu aðstæður í veðri og færð á hálendinu.
Fréttir Innlent Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira