Sport

13. jafntefli Inter á leiktíðinni

Tveir leikir voru í ítalska boltanum í gær. Brescia og Fiorentina gerðu 1-1 jafntefli. Reggina mætti Inter Milan á heimavelli og var niðurstaðan markalaust jafntefli. Þetta var þrettánda jafntefli Inter í nítján leikjum en liðið hefur enn ekki tapað leik. Ítalíumeistarar AC Milan og Udinese mætast í beinni útsendingu á Sýn klukkan tvö í dag. Milan er í öðru sæti og Udinese í þriðja.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×