Innlent

Útsvarstekjur allt að þrefaldast

Sveitarstjórarnir í Fljótsdalshéraði og Fljótsdalshreppi segja að tekjur sveitarfélaganna hafi aukist talsvert með tilkomu erlendra starfsmanna Impregilo, þó ekki í sama mæli og búast hefði mátt við þar sem treglega hafi gengið að fá réttar tölur vegna þess hversu margir erlendir starfsmenn séu utangarðs í skráningunni. Gunnþórunn Ingólfsdóttir, sveitarstjóri Fljótsdalshrepps, segir að útsvarstekjur sveitarfélagsins hafi þrefaldast frá því áður en framkvæmdir hófust á Kárahnjúkum, aukist úr 16 milljónum króna 2003 í 45 milljónir áætlaðar í fjárhagsáætlun 2005. Þar komi ekki bara til tekjur vegna erlendra starfsmanna heldur líka auknar tekjur á almennum markaði. "Við höfum hvorki aðgang að né höfum við lagst ofan í álagningu einstakra starfsmanna en gætum sjálfsagt gert það með samþykki skattstjóra. Á síðasta ári var þetta að miklu leyti áætlun skattstjóra. Útsvarsgreiðslur einstaklinganna hafa verið að skila sér inn en kærufrestur er ekki runninn út," segir hún. Eiríkur Björn Björgvinsson, sveitarstjóri Fljótsdalshéraðs, segir að útsvarstekjur sveitarfélagsins hafi aukist um 239 milljónir króna milli ára. Íbúum í sveitarfélaginu hafi fjölgað um 433 í fyrra, þar af um 360 vegna Impregilo. Þá séu um 443 starfsmenn á svokallaðri utangarðsskrá þjóðskrár. Mismunandi sé hvort sveitarfélagið hafi tekjur af þeim eða ekki og þá hversu miklar. Verið er að vinna í því að fá upplýsingar um réttan fjölda starfsmanna Impregilo og þar með réttar útsvarstölur vegna starfsmanna fyrirtækisins á Kárahnjúkum til að "tryggja það að við fáum það sem okkur ber," segir hann.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×