Laugar í Sælingsdal lifna við á ný 15. mars 2005 00:01
Yfirgefinn heimavistarskóli að Laugum í Sælingsdal er að lifna á ný. Þar hafa skólabúðir verið opnaðar en með þeim skapast tíu heilsársstörf í Dalabyggð. Það þótti mörgum sárt þegar grunnskólanum í Sælingsdal var lokað fyrir fimm árum, en hann var þá einn nýjasti og veglegasti heimavistarskóli landsins, með nýrri sundlaug og íþróttahúsi. Þarna er rekið hótel á sumrin en húsakynnin hafa verið tóm á veturna þar til nú. Haraldur Líndal Haraldsson, sveitastjóri Dalabyggðar, segir að sveitarfélagið starfræki nú ungmenna- og tómstundabúðir að Laugum í samvinnu við Ungmennafélag Íslands og Saurbæjarhrepp, en þær séu ætlaðar níundu bekkingum. Starfið hafi farið mjög vel af stað og aðstandendur séu mjög bjartsýnir því nú sé aftur komið líf að Laugum og þetta skapi að minnsta kosti tíu heilsársstörf. Hópar níundu bekkinga, hvaðanæva af landinu, mest úr Reykjavík en lengst frá Hornafirði, hafa dvalið í skólabúðunum í vetur. Þessi glæsilegu mannvirki sem byggð voru upp fyrir mikla fjármuni nýtast því á ný. Haraldur segir að það sem mestu máli skipti fyrir sveitina sé að þarna sé kominn stór vinnuveitandi í jaðar sveitarfélagsins þar sem lögbýli hafi verið að leggjast af því fólk hafi skort tekjur. Með þessum breytingum verði þetta fólk vonandi áfram í sveitinni.
Fréttir Innlent Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi Sjá meira