Herbalife-salar á alheimsráðstefnu 15. mars 2005 00:01
Íslenskir Herbalife-salar eru margir orðnir spenntir fyrir ráðstefnunni miklu í Atlanta í Bandaríkjunum í næsta mánuði og á heimasíðu þeirra eru dagarnir taldir niður. Heimsráðstefnur eru haldnar árlega en stemningin er óvenju mikil nú því 25 ár eru liðin frá stofnun Herbalife og afmælið haldið hátíðlegt um leið. Verður því meira um dýrðir en vanalega. Og ekki spillir hagstætt gengi dals. Óljóst er hve margir Íslendingar ætla utan; sumir segja nokkrir tugir, aðrir nefna töluna hundrað og enn aðrir segja hópinn fylla heila þotu. Hvað sem því líður er ljóst að hugur er í fólki. "Jú, jú, maður lætur þetta ekki framhjá sér fara, þetta gerist bara einu sinni á lífsleiðinni," segir Ásta María Eggertsdóttir, Herbalife-sali í Hólahverfinu í Reykjavík. Hún mun sitja ráðstefnuna, sem stendur 14.-17. apríl, en ætlar út nokkrum dögum fyrr til að slappa af og njóta lífsins. Ásta María hefur setið alheimsráðstefnur Herbalife undanfarin ár, til dæmis í Barcelona, Köln og París, og segir það engu líkt. "Það skapast ólýsanleg samstaða og þetta er mjög góð tilfinning. Það er sérstaklega gaman að vera á þessum stóru ráðstefnum og á gangi niðri í bæ og hitta fólk úr hópnum. Það er bara eins og að hitta ættingja. Slík er samstaðan og væntumþykjan," segir Ásta María. Að auki er hún stolt af að taka þátt í að bæta heilsu fólks. "Fólk þarf að taka sig á ef það ætlar ekki að drukkna í eigin spiki. Það færir mér mikla gleði að geta hjálpað til." Sjálf byrjaði Ásta María að nota Herbalife fyrir sjö árum og hefur aldrei liðið betur. Segir lífsgæði sín hafa aukist til muna frá því sem áður var. Áður vann hún hjá hinu opinbera en hefur nú viðurværi sitt af Herbalife-sölunni. Ásta María er ánægð með sig og sitt og þarfnast einskis. Hún ætlar því ekki að þræða búðirnar í Bandaríkjunum þó að verðið sé hagstætt nú um stundir. "Ég er svo heppin að ég á allt af öllu og þarf ekki meira. Ég ætla bara að njóta lífsins og skemmta mér," segir hún en útilokar samt ekki að hún líti inn í eina eða tvær verslanir með vinkonum sínum. Eins og á öðrum pylsum er endi á þeirri pylsu sem heimsráðstefna Herbalife-fólks í Atlanta er. Og vitaskuld leynist þar rúsína. Sjálfur Elton John mun spila fyrir ráðstefnugesti á föstudagskvöldinu. Og þeir þurfa ekki að borga krónu fyrir. "Já, Herbalife býður okkur upp á tónleika með Elton," segir Ásta María og hlakkar mjög til að hlýða á það ágæta söngvaskáld. "Einu sinni var okkur boðið upp á Annie Lennox og það var stórkostleg upplifun."
Fréttir Innlent Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira