Segir EES-útboð hafa verið nauðsyn 15. mars 2005 00:01
Ríkiskaupum bar að bjóða endurbætur á varðskipunum Tý og Ægi út á Evrópsska efnahagssvæðinu og með því sparast rúmar sjö milljónir króna. Samningurinn við pólsku skipasmíðastöðina er bindandi og verður ekki rift án greiðslu skaðabóta, að sögn yfirlögfræðings Ríkiskaupa. Járniðnaðarmenn hafa harðlega gagnrýnt Ríkiskaup fyrir að semja við pólska skipasmíðastöð um endurbæturnar á Tý og Ægi. Þeir hafa sagt að ekki hefði þurft að bjóða verkið út á Evrópska efnahagssvæðinu. Guðmundur I. Guðmundsson, yfirlögfræðingur Ríkiskaupa, segir það ekki rétt. Kostnaður við verkið hafi verið metinn yfir þeim 17,5 milljóna króna mörkum sem gera það skylt að fara í útboð. Guðmundur segir það hafa verið alveg skýrt í útboðinu hverjar reglurnar væru. Í útboðsgögnum komi fram hvernig staðið sé að vali á þeim sem vinni verkið. Ákveðnum atriðum hafi verið stillt upp og hagstæðasta tilboði tekið, í þessu tilviki frá pólsku skipasmíðastöðinni. Í framhaldi hafi verið gerður skriflegur samningur og honum verði ekki rift nema til bóta komi af hálfu Ríkiskaupa. Samningurinn sé því bindandi. Gagnrýnin hefur einnig snúist um að Ríkiskaup hafi ekki tekið með í reikninginn hversu kostnaðarsamt það sé að fara með skipin til Póllands. Guðmundur neitar því og segir kostnaðinn við það hafa verið metinn 5,8 milljónir króna. Hann haldi að tvisvar sinnum áður hafi verið farið með skipin til Póllands þannig að menn viti nokkuð vel hversu mikið það kosti. Sparnaðurinn sem hlýst af því að gera við skipin í Póllandi verði því rúmar sjö milljónir króna miðað við næstlægsta tilboð. En hvað með þær staðhæfingar að kostnaður hafi farið langt fram úr áætlun í fyrri skipti þegar skip hafa verið send til Póllands til viðgerða? Guðmundur segir að sér sé ekki kunnugt um að kostnaður hafi ekki staðist en það kunni hins vegar að vera að menn hafi látið vinna einhver aukaverk í leiðinni. Landhelgisgæslan geti svarað því.
Fréttir Innlent Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Sjá meira