Gert verði við varðskip hér heima 14. mars 2005 00:01
Samtök iðnaðarins lýsa miklum vonbrigðum yfir að enn skuli gengið fram hjá íslenskum skipasmíðastöðvum og samið við stöð í Póllandi vegna viðgerða á varðskipunum Landhelgisgæslunnar. Skorað er á ráðherra að taka af skarið og beita sér fyrir því að viðgerðir varðskipanna fari fram hér á landi. Ríkiskaup hafa samið við pólska skipasmíðastöð um endurbætur á varðskipunum Ægi og Tý þrátt fyrir að íslenskt fyrirtæki hafi einnig boðið í verkið. Í tilkynningu frá Samtökum iðnaðarins segir að með þessu sé endurtekin sama sagan og fyrir þremur árum þegar skipin voru send í endurnýjun til Póllands. Þá varð viðgerðin á Tý tæplega 60 prósentum dýrari en samið var um og á Ægi tæplega 90 prósentum dýrari. Slippstöðin var meðal þeirra sem bauð í verkið. Samkvæmt þeim tölum sem fyrir liggja er munurinn á tilboði Slippstöðvarinnar og pólsku skipasmíðastöðvarinnar aðeins 13 milljónir. Guðmundur Tulinius, forstjóri Slippstöðvarinnar, segir muninn lítinn og að hann sé sannfærður um að kostnaður við að vera með verkin í Póllandi sé meiri en sem nemi muninum á tilboðunum. Og hljóðið var þungt í mönnum á fundi Félags járniðaðarmanna sem fram fór á Norðurlandi í dag. Félagið mótmælir einnig ákvörðun Ríkiskaupa og bendir á að í skýrslu sem félagið fékk hjá VSÓ ráðgjöf um kostnað við siglingu varðskipa til Póllands komi fram að það yrði nokkur hundruð þúsund krónum ódýrara að gera við skipin hér heima. Sagan endurtaki sig þrátt fyrir yfirlýsingar ráðamanna á Alþingi fyrir fjórum árum og það geti haft alvarlegar afleiðingar fyrir íslenska járniðnaðarmenn. Hákon Hákonarson, formaður Félags járniðnaðarmanna, segir verkefnið stórt á íslenskan mælikvarða og samkvæmt þeim upplýsingum sem hann hafi hefði það verið leikur einn að ganga til viðræðna við Slippstöðina og láta á það reyna hvort ekki tækjust samningar. Þetta hafi verið alvarlega frétt helgarinnar fyrir Félag járniðnaðarmanna.
Fréttir Innlent Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Fleiri fréttir „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Sjá meira