Bjartsýnn þrátt fyrir slys 14. mars 2005 00:01
Tuttugu og þriggja ára gamall maður, Magnús Árni Hallgrímsson, dvelur nú á Landspítalanum í Fossvogi eftir að hafa misst vinstri fótinn fyrir neðan hné í slysi um borð í togara í síðustu viku. Þrátt fyrir slysið er Magnús Árni bjartsýnn og gerir ráð fyrir að geta lifað eðlilegu lífi með aðstoð gervifótar. Magnús Árni var fluttur með þyrlu Varnarliðsins á slysadeild Borgarspítalans en slysið varð upp úr hádegi á fimmtudaginn í síðustu viku. Magnús Árni var háseti á togaranum Hauki EA og hafði verið þar síðustu tvö ár. Þegar slysið varð var báturinn staddur um 12 sjómílur vestur af Stafnesi á Reykjanesi. Magnús Árni segist ekki muna mikið eftir slysinu. Hann hafi verið að draga niður kaðal sem hafi fest og farið öfugt og hann hafi flækst í honum. Magnús segir að skipsfélagarnir hafi brugðist hratt og skjótt við þegar þeim varð ljóst hvað hafði gerst. Einn félaga hans hafi áttað sig strax á aðstæðum og bundið strax utan um fótinn og hert að til að draga úr blæðingunni. Viðbrögð manna hafi annars verið misjöfn eins og almennt gerist. Magnús segir aðspurður ekki hafa áttað sig strax á því hversu alvarlegt slysið hafi verið. Það hafi hann ekki gert fyrr en hann hafi vaknað á sjúkrahúsinu, en þá hafi kærastan hans sagt honum að hann hefði misst fótinn. Aðspurður hvernig upplifun það sé fyrir ungan mann að missa fótinn segist Magnús lítið hafa velt þessu fyrir sér. Hann eigi eftir að geta unnið eins og áður þar sem hann geti fengið gervifót. Magnús segir aðspurður að sér líði ágætlega í dag miðað við hversu alvarlegt slysið hafi verið. Hann sé bjartsýnn á framtíðina. Magnús Árni dvelur nú á bæklunardeild Borgarspítalans þar sem hann jafnar sig eftir aðgerðina. Á næstu mánuðum mun hann hefja endurhæfingu og fá gervifót frá stoðtækjafyrirtækinu Össuri. Magnús er bjartsýnn á framtíðina og vonast til að komast á sjóinn á nýjan leik.
Fréttir Innlent Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Fleiri fréttir Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Sjá meira