Víðtækt samstarf lögregluliða 20. janúar 2005 00:01
Lögreglustjórinn á Akranesi og varalögreglustjórinn í Reykjavík ásamt yfirlögregluþjónum undirrituðu í dag samning um víðtækt samstarf lögregluliðanna í Reykjavík og á Akranesi til að styrkja löggæslu á Akranesi, Kjalarnesi, Kjósarhreppi og eftir atvikum í Mosfellsbæ. Með samningnum er leitast við að gera lögregluna sýnilegri á svæðinu, stytta viðbragðstíma vegna útkalla, auka þjónustu við borgarana og tryggja betur öryggi þeirra og um leið nýta betur fjármagn, mannafla og tæki lögreglu. Aðdragandi samningsins er sá að lögregluliðin hafa um skeið átt með sér samstarf á sviði umferðarmála í tengslum við samstarfsverkefni allra lögregluliðanna á Vesturlandi. Það samstarf heldur áfram en stjórnendur lögreglunnar í Reykjavík og á Akranesi hafa tekið ákvörðun um enn frekari samvinnu á sem flestum sviðum löggæslunnar, en ekki eingöngu umferðarmála. Lögregluliðunum er samkvæmt samningnum heimilt að sinna útköllum í hvoru umdæminu sem er og eru skjót og góð þjónusta höfð að leiðarljósi. Í neyðartilfellum skal ávallt senda þá eftirlitsbifreið sem næst er vettvangi. Þá sinna bæði liðin umferðareftirliti á svæðinu án tillits til umdæmismarka. Gert er ráð fyrir gagnkvæmri aðstoð vegna stærri verkefna sem og að veitt sé aðstoð ef ekki tekst að sinna verkefnum sökum anna, t.d. ef lögreglumenn eru uppteknir vegna tímafreks verkefnis. Vinna samkvæmt samstarfssamningnum er þegar hafin.
Fréttir Innlent Mest lesið Hljóp inn í brennandi byggingu til að bjarga nágrannanum Innlent „Hættulegasti maður Noregs“ fannst látinn í fangaklefa Erlent Svona mun Suðurlandsbraut líta út Innlent Hótaði málþófi vegna veiða sem tengdasonurinn stundar Innlent Tæplega þrjátíu prósent Tesla Y þurftu í endurskoðun Innlent Óvissustigi lýst yfir vegna snjóflóðahættu Innlent Saksóknarar hóta uppreisn í Minneapolis Erlent Hafði aldrei heyrt um handbolta fyrr en hún kynntist handboltaóðu þjóðinni Innlent Afi fór ekki yfir strikið með meintri rassskellingu Innlent Sveitarstjóra ekki heimilt að banna hundahald Innlent Fleiri fréttir Harma launalækkanir í fiskeldi á Vestfjörðum Myndbirtingar foreldra geti skapað hættu Óvissustigi lýst yfir vegna snjóflóðahættu „Muni ekki valda neinu öðru en umferðaröngþveiti“ „Mér þykir leiðinlegt að þetta gangi ekki betur“ Hafði aldrei heyrt um handbolta fyrr en hún kynntist handboltaóðu þjóðinni Auglýsa forskráningu í skóla í Grindavík Segir ekkert náttúrulögmál að bílasalar þurfi að velta hækkunum út í verðlagið Þrjár hlutu heiðursverðlaun Fimm handteknir grunaðir um skipulagðan þjófnað Ráðherra situr fyrir svörum, gleðitíðindi og konan sem hafði aldrei heyrt um handbolta Seinka sýningum fyrir leikinn Óbirt svör og starfslokin tekin fyrir Tæplega þrjátíu prósent Tesla Y þurftu í endurskoðun Mikil andstaða við nýtt 160 herbergja hótel á Laugarvatni Á fjórða hundrað vilja á lista Sjálfstæðisflokks í Reykjavík Hótaði málþófi vegna veiða sem tengdasonurinn stundar Svona mun Suðurlandsbraut líta út Kannast ekki við tilraunir til að stofna nýtt Vélfag Ljósið flytur í Grafarvog Launin lækkuð um 97 prósent en ekki afnumin „Við eigum ekki að vera hrædd við að taka umræðuna“ Pallborðið: Aðstoðarmenn, bæjarstjóri og viðskiptafræðingur Viðreisnarfélögum fjölgað um helming fyrir prófkjör Afi fór ekki yfir strikið með meintri rassskellingu Guðjón endurkjörinn og Simon líka Mannabreytingar samráðsfunda eins og tiltekt á jólakortalista Óttast vaxtahækkanir vegna sleggjunnar sem stjórnvöld „fengu í trýnið“ Verðbólgan eykst en loðnan gleður Bein útsending: Opinn fundur um áfallaþol Íslands Sjá meira