Gæti bjargað Landsvirkjun 20. janúar 2005 00:01
Úrskurður Héraðsdóms um að Álverið við Reyðarfjörð þurfi að fara í nýtt umhverfismat gæti bjargað Landsvirkjun frá hárri skaðabótakröfu vegna tafa við Kárahnjúkastíflu. Úrskurðurinn gæti meira að segja orðið til þess að eigandi Álversins þyrfti að greiða Landsvirkjun en ekki öfugt. Samningur milli Landsvirkjunar og Alcoa gerir ráð fyrir skaðabótaábyrgð verði ekki staðið við tímasetningar. Áætlað er að byrja að láta renna í Hálslón 1. september árið 2006 en framkvæmdin hefur þegar tafist um nokkura mánuði. Takist ekki að láta renna í lónið á tilsettum tíma gæti dregist um marga mánuði að hefja álframleiðslu á Reyðarfirði sem fyrirhugað er að hefja 1. apríl 2007. Þetta kallar á háar skaðabætur samkvæmt samningi Landsvirkjunar og Alcoa. Landsvirkjun hefur hins vegar talið að hægt væri að standa við tímasetningar og gert í því skyni viðbótarsamninga við Impregilo. Deilur um það vinnuafl sem Impregilo hyggst nota gætu hins vegar sett strik í reikninginn. Ef Landsvirkjun getur ekki útvegað Álverinu það rafmagn sem þarf fyrir tilsettan tíma þarf að bæta Álverinu þá framlegð sem þá fer forgörðum. En samningurinn virkar í báðar áttir. Staðfesti Hæstiréttur dóm Héraðsdóms getur nýtt umhverfismatsferli seinkað því verulega að Álverið hefji starfsemi. Álverið þarf að greiða fyrir 85% prósent af því rafmagni sem fyrirhugað er að nota í því, hvort sem það verður notað eða ekki. Jóhannes Geir Sigurgeirsson, stjórnarformaður Landsvirkjunar, segir að fyrirvari sé þó hafður á í samningnum að ef menn láti vita af töfum í tíma, þá beri hinum aðilum að haga sinni framkvæmd þannig að tjónið verði sem minnst. Hann segir að bæði Alcoa og Landsvirkjun ætli hins vegar að kappkosta að standa við tímasetningar og það ætti að geta tekist. Alcoa gæti þá hins vegar hugsanlega höfðað skaðabótamál á hendur íslenska ríkinu. Eigendur Álversins hafa ekki viljað segja til um hvort slíkt skaðabótamál verði höfðað.
Fréttir Innlent Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira