Esso og Olís taka til baka hækkun 20. janúar 2005 00:01
Bæði Esso og Olís hafa tekið til baka tveggja krónu hækkun á bensínlítrann frá því fyrr í vikunni en hvorki Skeljungur né Atlantsolía hækkuðu verðið í kjölfar hinna. Þessi atburðarás gefur óneitanlega vísbendingu um samkeppni. Essó hækkaði verðið á mánudag en tók hækkunina til baka undir kvöld á þriðjudag. Rétt áður, á þriðjudag, hafði Olís hækkað til samræmis við Essó en tók þá hækkun til baka snemma í gærmorgun. Essó gaf þá skýringu á hækkuninni á mánudag að hún væri vegna nýrra reglna Evrópusambandsins um lægra brennisteinsinnihald í bensíni en tíðkast hefur og að það sé dýrara. Atlantsolía hefur selt allt sitt bensín í heilt ár samkvæmt nýju reglunum og hefur samt verið leiðandi í lágu bensínverði. Reglur um brennisteinsminni gasolíu tóku líka gildi um áramót en miðað við heimsmarkaðsverð á því og eldri gerðinni snemma í desember síðastliðnum hefði nýja gasolían átt að verða u.þ.b. fjórum krónum dýrari en sú eldri, sem sagt hækkun um fjórar krónur um áramót. Atlantsolía hefur frá upphafi selt nýju olíuna og Skeljungur byrjaði að dreifa henni á allar sínar stöðvar síðastliðið haust. Olís og Essó hafa þá tekið hækkunina á sig sjálf til að fara ekki upp fyrir hin félögin í verði.
Fréttir Innlent Mest lesið Hljóp inn í brennandi byggingu til að bjarga nágrannanum Innlent „Hættulegasti maður Noregs“ fannst látinn í fangaklefa Erlent Svona mun Suðurlandsbraut líta út Innlent Hótaði málþófi vegna veiða sem tengdasonurinn stundar Innlent Tæplega þrjátíu prósent Tesla Y þurftu í endurskoðun Innlent Saksóknarar hóta uppreisn í Minneapolis Erlent Sveitarstjóra ekki heimilt að banna hundahald Innlent Afi fór ekki yfir strikið með meintri rassskellingu Innlent „Við eigum ekki að vera hrædd við að taka umræðuna“ Innlent Ellefu meðlimir glæpafjölskyldu teknir af lífi í Kína Erlent Fleiri fréttir Óvissustigi lýst yfir vegna snjóflóðahættu „Muni ekki valda neinu öðru en umferðaröngþveiti“ „Mér þykir leiðinlegt að þetta gangi ekki betur“ Hafði aldrei heyrt um handbolta fyrr en hún kynntist handboltaóðu þjóðinni Auglýsa forskráningu í skóla í Grindavík Segir ekkert náttúrulögmál að bílasalar þurfi að velta hækkunum út í verðlagið Þrjár hlutu heiðursverðlaun Fimm handteknir grunaðir um skipulagðan þjófnað Ráðherra situr fyrir svörum, gleðitíðindi og konan sem hafði aldrei heyrt um handbolta Seinka sýningum fyrir leikinn Óbirt svör og starfslokin tekin fyrir Tæplega þrjátíu prósent Tesla Y þurftu í endurskoðun Mikil andstaða við nýtt 160 herbergja hótel á Laugarvatni Á fjórða hundrað vilja á lista Sjálfstæðisflokks í Reykjavík Hótaði málþófi vegna veiða sem tengdasonurinn stundar Svona mun Suðurlandsbraut líta út Kannast ekki við tilraunir til að stofna nýtt Vélfag Ljósið flytur í Grafarvog Launin lækkuð um 97 prósent en ekki afnumin „Við eigum ekki að vera hrædd við að taka umræðuna“ Pallborðið: Aðstoðarmenn, bæjarstjóri og viðskiptafræðingur Viðreisnarfélögum fjölgað um helming fyrir prófkjör Afi fór ekki yfir strikið með meintri rassskellingu Guðjón endurkjörinn og Simon líka Mannabreytingar samráðsfunda eins og tiltekt á jólakortalista Óttast vaxtahækkanir vegna sleggjunnar sem stjórnvöld „fengu í trýnið“ Verðbólgan eykst en loðnan gleður Bein útsending: Opinn fundur um áfallaþol Íslands Sakar mótframbjóðanda um trúnaðarbrest og kallar eftir prófkjöri Leigubílar verði á lituðum númeraplötum Sjá meira