Erlent

Komið upp um sígarettusmyglhring

Lögreglan í Belgíu og á Bretlandi handtóku í vikunni 10 manns sem taldir eru félagar í alþjóðlegum sígarettusmyglhring. Um leið gerði lögreglan sex milljónir sígarettna upptækar, en mennirnir höfðu reynt að smygla þeim frá Austur-Evrópu til Bretlands í vöruflutningabílum. Um var að ræða fjölþjóðlegan hóp því í honum voru fjórir Pólverjar, þrír Belgar, tveir Rússar og einn Hollendingur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×