Erlent

Vatnsorkuver menga líka

Vatnsorkuver eru ekki eins umhverfisvæn eins og menn gjarnan telja. Ný rannsókn bendir til að úr uppistöðulónum þeirra geti streymt meira magn gróðurhúsaloftegunda en kolaorkuver framleiða. Slíkar lofttegundir eru taldar valda hlýnun jarðar. Í danska blaðinu Politiken í vikunni er greint frá rannsóknum vísindamanna á uppistöðulóni raforkuvers í Brasilíu. Þegar stífla þess var reist fór stórt svæði sem hulið var gróðri undir vatn. Þegar kolefnisríkur gróðurinn rotnaði í vatninu stigu kynstrin öll af koltvísýringi og metangasi upp á yfirborðið og blandaðist andrúmsloftinu, jafnvel meiri en kola- og olíuorkuver af svipaðri stærð framleiða. "Allir halda að vatnsorka sé mjög hreinn orkugjafi en það er ekki tilfellið," sagði Éric Duchemin, ráðunautur hjá Sameinuðu þjóðunum um niðurstöður rannsóknanna. Íslensk uppistöðulón eru að jafnaði mynduð á gróðursnauðari svæðum en brasilísk lón og því má ætla að ekki streymi gróðurhúsalofttegundir í jafn ríkum mæli úr þeim.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×