Gagnagrunnur um bíóaðsókn 22. mars 2005 00:01
Samtök myndrétthafa á Íslandi, SMÁÍS, hafa tekið í notkun nýja veflausn sem heldur utan um aðsókn í kvikmyndahús og gerir kvikmyndahúsunum kleift að vinna með hagkvæmum hætti tölfræði um aðsókn að kvikmyndum. „Með nýju upplýsingakerfi fyrir skráningu bíóaðsóknar er stigið mikilvægt skref í átt að hagkvæmari upplýsingagjöf til okkar meðlima,“ segir Hallgrímur Kristinsson, framkvæmdastjóri SMÁÍS. „Kvikmyndahúsin þurfa mikið að vinna með tölfræði tengdri aðsókn og hingað til hafa þessi gögn ekki verið til miðlægt og því öll vinna með þau tímafrek. Með þessari veflausn getur hver og einn sótt á augabragði skýrslur um aðsókn á einstakar myndir eða topp 20 lista ákveðinnar viku, ákveðins árs svo dæmi séu tekin.“ Upplýsingakerfið, sem hlotið hefur nafnið „Askur“, mun innihalda allar aðsóknartölur fyrir kvikmyndir frá árinu 1995 en þá var fyrst byrjað að halda utan um aðsóknartölfræði. Dreifingaraðilar kvikmynda skrá sjálfir inn í kerfið í gegnum vefinn helstu upplýsingar um hverja mynd fyrir sig, t.d. leikara, leikstjóra, erlenda og innlenda dreifingaraðila o.s.frv., ásamt daglegum aðsóknartölum. Þá munu fjölmiðlar hafa sérstakan aðgang inn í kerfið þar sem þeir geta sótt topp 20 aðsóknarlistann hverju sinni til að birta í fjölmiðlum. Vefurinn byggir á SilverFrame.NET sem er einfalt vefumhverfi fyrir sérsmíðaðar lausnir í Microsoft .NET frá Nýherja. Einnig er notast við Reporting Services ofan á Microsoft SQL gagngrunn til að gefa notendanum einfalt og þægilegt skýrsluviðmót fyrir úrvinnslu gagna. Um er að ræða heildarlausn sem hýst er hjá Nýherja. „Nýherji hefur náð fram okkar markmiðum með hagkvæmri lausn sem byggir á einföldu notendaviðmóti, auðveldu aðgengi og gagnvirkum skýrslum,“ segir Hallgrímur. „Við eigum von á því að útvíkka enn frekar lausnina sem við erum komnir með í dag og viljum skoða hvernig stærri hluti af okkar upplýsingum geta átt heima í lausninni.“
Fréttir Innlent Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Fækkar lögregluembættum Innlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Sjá meira