Undrandi á endurkomu Hallgríms 22. mars 2005 00:01
Íslenskir friðargæsluliðar sem störfuðu undir Hallgrími Sigurðssyni á Kabúlflugvelli í Afganistan segjast undrandi á því að hann sé aftur kominn til starfa við flugvöllinn, nú á vegum Flugmálastjórnar. Hallgrímur er aðstoðarframkvæmdastjóri hjá Flugmálastjórn og var í leyfi þaðan á meðan hann var flugvallarstjóri í Kabúl og yfirmaður alþjóðlegu friðargæslunnar þar. Þegar utanríkisráðuneytið leysti hann frá störfum, og kallaði heim fyrr en áætlað hafði verið vegna sjálfsmorðsárásarinnar í Chicken Street í Kabúl, fór Hallgrímur aftur í sitt fyrra starf hjá Flugmálastjórn. Þegar Atlantshafsbandalagið leitar síðan til Íslands eftir aðstoð við að gera úttekt á Kabúlflugvelli og gera áætlun um hvernig eigi að breyta honum úr herflugvelli í borgaralegan flugvöll, fór málið inn á borð Flugmálastjórnar sem valdi Hallgrím til starfans, ásamt öðrum. Hallgrímur mun ekki verða staðsettur í Kabúl en hann er nýkomin úr fyrstu ferð sinni til borgarinnar í þessu embætti en þar var hann ásamt Arnóri Sigurjónssyni, yfirmanni íslensku friðargæslunnar. Sverrir Haukur Grönli, sem var einn þeirra þriggja friðargæslumanna sem særðust í sjálfsmorðsárásinni í Chicken Street, segist afar undrandi á því að Hallgrímur sé aftur farin að starfa á svipuðum vettvangi fyrir íslenska ríkið. Aðrir friðargæsluliðar sem fréttastofa hefur rætt við taka í sama streng. Málið er á borði samgönguráðherra þar sem Flugmálastjórn heyrir undir hann en ekki náðist í Sturlu Böðvarsson fyrir hádegi. Svo virðist, að minnsta kosti, að málið sé komið í þennan farveg án bæði vitundar og vilja utanríkisráðuneytisins sem kallaði Hallgrím heim frá Kabúl fyrir fjórum mánuðum.
Fréttir Innlent Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Rubio lentur á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Sjá meira