Handahófskennd vinnubrögð 19. mars 2005 00:01
Mál skákmeistarans Bobby Fischer fær flýtimeðferð á Alþingi en Allsherjarnefnd Alþingis samþykkti fyrir helgina með öllum greiddum atkvæðum að veita honum ríkisborgararétt. Sæmundur Pálsson, vinur Fischers, gerir ráð fyrir að fara til Japans til að sækja hann og bókar flugið eftir helgina. "Ég býst við að vera á þingpöllum á mánudaginn til að sjá hvernig þetta fer," sagði hann í gær. Ragnar Aðalsteinsson hrl. segir að fjölmargir menn hafi dvalið á Íslandi árum saman og tali íslensku jafn vel og innfæddir. Þeir séu í raun orðnir Íslendingar en sumir þeirra verði ekki ríkisborgarar fyrr en eftir sjö ár. Valdið sé hjá Alþingi. Stundum hafi Alþingi notað það skynsamlega og stundum óskynsamlega. "Alþingi hefur tilhneigingu til að setja ýmis sérsjónarmið. Tvívegis hafa íþróttamenn fengið fyrirvaralausan ríkisborgararétt fyrir framgang keppnisíþrótta Íslands á alþjóðlegum vettvangi. Danska þingið hefur hinsvegar hafnað slíku og talið rangt að mismuna fólki af íþróttaástæðum," segir hann. Bjarni Benediktsson, formaður Allsherjarnefndar Alþingis, hefur sagt að erfitt sé að segja til um fordæmisgildi málsins og viljað gera sem minnst úr því. Ragnar telur hinsvegar að málið hljóti að hafa fordæmisgildi. "Þeir sem sækja um ríkisborgararétt og eru í erfiðri aðstöðu munu auðvitað benda á þetta fordæmi eins og fordæmið með íþróttamennina. Þetta er það sem mælir gegn svona handahófskenndum vinnubrögðum," segir hann og óttast að hætt verði að veita öðrum útlendingum ríkisborgararétt í bili því nóg þyki gert með Fischer. Stjórnvöld séu hugsanlega að slá sig til riddara í þessu máli. Ragnar kveðst ekki skilja samstarf Japana og Bandaríkjamanna í þessu máli. "Mér er enn algjörlega óljóst hvers vegna Fischer er haldið föngnum svona lengi án þess að framsalskrafa komi frá Bandaríkjunum. Hann er búinn að sitja meira en hálft ár í fangelsi og það er auðvitað brot á mannréttindum hans."
Fréttir Innlent Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Fleiri fréttir Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Sjá meira