Háskólasetur stofnað á Ísafirði 19. mars 2005 00:01
Háskólasetur á Ísafirði er stórt skref í menntamálum Vestfirðinga en þar verður boðið upp á fjölbreytt nám sem tengist atvinnugreinum á Vestfjörðum. Háskólasetrið á Ísafirði var stofnað þann 12. mars síðastliðinn og eru allir háskólarnir í landinu stofnaðilar setursins auk rannsóknarstofnana sveitarfélaga og fyrirtækja á Vestfjörðum. Háskólasetrið mun taka til starfa í haust og það er ljóst að stofnun þess mun hafa mikla þýðingu fyrir Vestfirði. Tilkoma háskólasetursins mun auka framboð á háskólanámi til muna á Vestfjörðum og ferðalögum nemenda sem stunda háskólanám mun fækka. Halldór Halldórsson, bæjarstjóri á Ísafirði, segir að með þessu sé í raun verið að búa til mjög nútímalegan háskóla sem byggist á blöndu af fjarnámi og staðbundnu námi sem eigi að byrja að þróa strax í haust. Um eitt hundrað nemendur á Vestfjörðum stunda nú háskólanám í fjarnámi hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða og segist Halldór búast við að strax í haust muni háskólasetrið taka til starfa og nemendur bætast ört í hópinn. Hann segir að boðið verði upp á það sem mest spurn verði eftir og það sem Vestfirðingar muni þróa sjálfir og byggist á sérstöðu þeirra. Þeir hafi ekki áhuga á að búa til enn einn háskólann sem bjóði upp á viðskiptafræði og lögfræði eða slíkt heldur vilji þeir geta kennt það í samstarfi við aðra háskóla. Vestfirðingar vilji þróa sitt eigið nám sem byggist á því sem verið sé að rannsaka á Vestfjörðum, svo sem þorskeldisrannsóknum, veiðarfærarannsóknum, snjóflóðarannsóknum, fjölmenningarmálum, sérstöðu Vestfjarða vegna Hornstrandarfriðlands og tónlist.
Fréttir Innlent Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Rubio lentur á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira