Varðskipunum breytt í Póllandi 11. mars 2005 00:01
Landhelgisgæslan samdi í vikunni við pólsku skipasmíðastöðina Morska Stocznia Remontova um breytingar og endurbætur á varðskipunum Ægi og Tý í kjölfar útboðs sem Ríkiskaup hafði umsjón með. Samningstímabilið er tvö ár og verður Ægi breytt í sumar en Tý sumarið 2006. Tilboð voru opnuð 27. janúar sl. og voru sex þeirra metin gild. Þar af voru tvö frá íslenskum skipasmíðastöðvum, Þorgeiri og Ellerti á Akranesi og Slippstöðinni á Akureyri. Morska bauð sem nemur tæplega 274 milljónum íslenskra króna í breytingar á báðum varðskipunum en önnur tilboð voru mun hærri og það hæsta 228% hærra en lægsta boð. Kostnaðaráætlun Landhelgisgæslunnar hljóðaði upp á um 191 milljón íslenskra króna en helstu ástæður þess hversu miklu munar á henni og lægsta boði er m.a. að á sl. ári hækkaði verð á stáli mikið. Þá er og gert ráð fyrir að verkið verði unnið á háannatíma hjá skipasmíðastöðvum. Þegar tilboð í verkin voru metin var ekki eingöngu tekið mið af fjárhæðum. Litið var til þess hvort fyrirtækin höfðu ISO-vottun og reynslu af sambærilegum verkum. Morska var ekki eingöngu með lægsta tilboðið í krónum talið heldur hafði það einnig ISO-vottun og mikla reynslu. Gefin voru stig fyrir fyrirfram gefna þætti og fékk Morska 97 stig af 100 mögulegum en önnur fyrirtæki voru með talsvert lægri einkunn. Í verkinu felst að brú skipanna verður endurnýjuð og hún stækkuð. Stjórnbúnaður og rafmagnslagnir í brúnni verða endurnýjaðar ásamt stjórnpúltum. Mjög fullkominn samhæfður tölvustjórnbúnaður verður í nýjum stjórnpúltum. Íbúðir áhafnarinnar og dráttarvindur skipanna verða endurnýjaðar. Einnig verður sett niður stærri og fullkomnari vinda með átaksstjórnun. Þessar breytingar eru samhliða hefðbundinni slipptöku skipanna.
Fréttir Innlent Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira