Kosið milli Ágústar og Kristínar 11. mars 2005 00:01
Ágúst Einarsson, prófessor í rekstrarhagfræði, og Kristín Ingólfsdóttir, prófessor í lyfjafræði, urðu efst í rektorskjöri innan Háskóla Íslands á fimmtudag. Því verður kosið á milli þeirra tveggja næsta fimmtudag, en hinir frambjóðendurnir tveir, Einar Stefánsson, prófessor í augnlækningum, og Jón Torfi Jónasson, prófessor í uppeldis- og menntunarfræði, eru fallnir úr leik. Í hádeginu á þriðjudaginn 15. mars verður haldinn kappræðufundur milli Ágústs og Kristínar í Háskólabíó. Kristín hlaut 28,7 prósent gildra atkvæða, Ágúst hlaut 27,6 prósent, Jón Torfi hlaut 24,7 prósent og Einar hlaut 19,1 prósent gildra atkvæða. Allir frambjóðendur eru sammála um að kosningabaráttan hafi verið afar drengileg. Ágúst segist mjög ánægður með þessa niðurstöðu og er bjartsýnn á framhaldið. "Munurinn er tiltölulega lítill, ekkert sem skiptir máli, en nú byrjar þetta upp á nýtt." Hann segir jafnframt að nái hann kjöri sem rektor, hafi hann ákveðið að gegna starfinu einungis í fimm ár. "Þetta er eitthvað sem ég hef gert upp við mig. Þetta er verkefni og ég myndi helga því starfi mínu í fimm ár, en svo myndi ég snúa mér aftur að rannsóknum og kennslu." Kristín segir að niðurstöðuna hafa komið sér á óvart. Þarna hafi hún verið í hópi sterkra og verðugra meðframbjóðenda. "Þetta var auðvitað afskaplega ánægjulegt." Spurð að því hvort það kitli ekki að vera komin skrefinu nær því að verða fyrsti kvenrektor Háskólans, segir hún þetta vissulega mikilvægan áfanga til að ná lokamarkmiðinu. "Ég mun gera það sem ég get til að koma stefnumálum mínum og áherslum á framfæri þessa viku." Einar og Jón Torfi segjast báðir sáttir sig við niðurstöðuna, en vilja ekki gefa upp hvorn frambjóðandann þeir styðji nú. "Nú ætla ég að draga mig úr baráttunni og fólk gerir það bara upp við sig sjálft hvern það styður," segir Jón Torfi. Kosning til rektors Öll gild atkvæði: Ágúst Einarsson 27,6% Einar Stefánsson 19,1% Jón Torfi Jónasson 24,7% Kristín Ingólfsdóttir 28,7% Háskólamenntaðir starfsmenn: Ágúst Einarsson 26,0% Einar Stefánsson 21,1% Jón Torfi Jónasson 21,8% Kristín Ingólfsdóttir 31,2% Aðrir starfsmenn: Ágúst Einarsson 31,5% Einar Stefánsson 3,4% Jón Torfi Jónasson 38,1% Kristín Ingólfsdóttir 27,0% Stúdentar: Ágúst Einarsson 28,4% Einar Stefánsson 18,3% Jón Torfi Jónasson 26,1% Kristín Ingólfsdóttir 27,2% Vægi atkvæða skiptist þannig ; háskólamenntaðir starfsmenn 60%, aðrir starfsmenn 10% og stúdentar 30% Heimild: hi.is, fréttavefur Háskóla ÍslandsMöguleg tímamót Ef Kristín Ingólfsdóttir verður kjörinn rektor Háskóla Íslands, verður hún fyrsta konan til að sinna því starfi.Vilhelm
Fréttir Innlent Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira