Innlent

Viðbrögð kúabónda fyrirsjáanleg

Neikvæð viðbrögð Landssambands kúabænda koma Ólafi M. Magnússyni, framkvæmdastjóra Mjólku, ekki á óvart. Hann segist hins vegar sannfærður um lögmæti starfseminnar. Þórólfur Sveinsson, formaður Landssambands kúabænda, sagði í fréttum um helgina að hann efaðist um lögmæti Mjólku þar sem hann teldi að samkvæmt lögum mættu einungis þeir sem ættu mjólkurkvóta og fengju beingreiðslur framleiða mjólk fyrir innanlandsmarkað. Mjólka lét vinna fyrir sig lögfræðiálit áður en farið var af stað og telur framkvæmdastjórinn, Ólafur M. Magnússon, engan vafa leika á lögmæti starfseminnar - ríkið geti ekki átt markaðinn. Hann segir viðbrögðin ekki koma á óvart en hann kveðst ekki skilja þennan málflutning. Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra óskaði Mjólkumönnum velfarnaðar en taldi reksturinn geta orðið erfiðan þar sem tæpur helmingur framleiðslukostnaðar hjá mjólkurbændum er greiddur af ríkinu. Ólafur segir að Mjólka ætli í alla framleiðsluþættina sjálf þannig að virðisaukningin verði eftir hjá fyrirtækinu. „Við teljum að þetta sé vel mögulegt. Mjólkurverð hér er mjög hátt og með því hæsta sem gerist í heiminum,“ segir Ólafur. Það eru þegar komnar 50 kýr í fjósið að Eyjum II en aðspurður hvað sé gert við alla utankerfismjólkina sem þær gefa af sér, þar til ostagerðin fer af stað, seir Ólafur að þau nýti hana að mestu leyti sjálf, auk þess að gefa kálfum og öðrum skepnum. Mjólkumenn vona að jákvæð afstaða landbúnaðarráðherra og yfirlýsing frá Landssambandi kúabænda, um að ekki verði farið fram á sérstakan úrskurð um lögmæti Mjólku að svo stöddu, þýði að ekki þurfi að fá dómstóla til að skera úr um hvort mjólkurbændur megi starfa án ríkisstyrkja.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×