Þinglýst til að verjast braski 28. febrúar 2005 00:01
Borgarráð tekur á næstunni ákvörðun um hvort 30 lóðum undir einbýlishús við Lambasel í Breiðholti verði úthlutað með hefðbundnum hattardrætti eða haldið verði útboð eins og gert var í Norðlingaholti. Lóðirnar verða fyrst auglýstar á næstunni í Stjórnartíðindum. Þegar lóðunum hefur verið úthlutað verður þeim þinglýst hjá sýslumannsembættinu til að koma í veg fyrir að lóðarhafi selji lóðina aftur í stað þess að skila henni aftur til borgarinnar ef honum snýst hugur um húsbygginguna. Þannig hyggjast borgaryfirvöld tryggja að lóðarhafi byggi á lóðinni. Dagur B. Eggertsson, formaður skipulags- og bygginganefndar, segir að verið sé að skoða úthlutunarleiðirnar tvær, meðal annars með tilliti til þess hvernig hagsmunum borgarbúa verði best borgið á tímum hækkandi lóðaverðs. Borgaryfirvöld fylgjast grannt með umræðunni um lóðaverð og því hvaða áhrif þessi rúmlega tíundi hluti af fasteignamarkaðnum hefur á aðra hluta markaðarins. Með því að þinglýsa lóðunum segir Dagur að neglt verði fyrir þá glufu að fjármálafyrirtæki eða verktakar geti fengið lóðirnar og selt síðan aftur. "Það yrði bara hægt ef verktakar fengju lóð sem einstaklingar og ætluðu að búa þarna sjálfir. Það verða allir að hafa jafnan rétt á því." Verð lóðanna hefur ekki verið ákveðið enda getur það mótast af því hvaða úthlutunarleið verður farin. Dagur bendir á að lóðir séu verðmætar í eðli sínu og telur ekkert endilega um brask að ræða. "Vandinn í þessu snýr að því að þarna eru stjórnvöld að úthluta gæðum og þá vill maður gera það á eins réttlátan hátt og hægt er og reyna að sníða leikreglurnar þannig að það sé ekki einn umfram annan að fá einhver gæði ókeypis sem hann síðan selur næsta manni."
Fréttir Innlent Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira