Býður Gæslunni eldsneyti 28. febrúar 2005 00:01
Markaðsstjóri Atlantsolíu hvetur Landhelgisgæsluna til að kaupa eldsneyti af Atlantsolíu þegar kaupin fara fram hér á landi. Hann telur Skeljung hafa fyrirgert þeim rétti sínum að vera birgir Gæslunnar. Forstjóri Landhelgisgæslunnar sagði í fréttum Stöðvar 2 í gær að íslensku olíufélögin hefðu farið svo illa með Gæsluna á síðustu árum að ekki væri keypt af þeim olía nema brýna nauðsyn bæri til. Þegar Landhelgisgæslan kaupir eldnseyti hér á landi er það hjá Skeljungi samkvæmt útboði Ríkiskaupa sem fram fór á síðasta ári. Um er að ræða viðskipti upp á tugi milljóna og mælist Hugi Hreiðarsson, markaðsstjóri Atlantsolíu, til þess að forstjórinn beini viðskiptum sínum til félagsins. Hann segist sérstaklega horfa til þeirra viðskipta sem fram fari á suðvesturhorni landsins, þeirra viðskipta sem Atlantsolía geti boðið í. Í viðtalinu hafi forstjórinn ekki sagst vilja skipta við íslensku olíufélögin en hafi líklega gleymt Atlantsolíu. Hann hvetji Langhelgisgæsluna og aðra stórnotendur að leita tilboða. Hugi segir að það útboð sem fram hafi farið á síðasta ári geti jafnvel talist marklaust vegna reglna um hæfi bjóðenda. Hann vísar þar í 28. grein laga um opinber innkaup sem segir að að heimilt sé að vísa bjóðanda frá á hvaða stigi útboðs sem er ef hann hafi með dómi verið fundinn sekur um refsivert brot í starfi. Hann segir að athugandi sé hvort heimfæra megi þessa lagagrein á niðurstöðu samkeppnisyfirvalda um verðsamráð stóru olíufélaganna. Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, sagði í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 í dag að málið yrði skoðað vandlega og þá með hliðsjón af því hvar Landhelgisgæslan gæti fengið ódýrustu olíuna án þess að brjóta samninga.
Fréttir Innlent Mest lesið Fékk viðurkenninguna ekki afhenta fyrr en á þriðjudeginum: „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig“ Innlent Fólk þurfi að gæta sín þegar það leigir íbúðina út í ágúst Innlent Kominn með nóg af tímasetningu lögreglu Innlent Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Innlent Fullyrti að samkomulag yrði undirritað og sundið opnað Erlent Límdu efnin á fætur sína Innlent 250 skjálftar en enginn gosórói að svo stöddu Veður Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Innlent Tilkynnt um tónlistarhávaða um allan bæ Innlent Skipagöngin samþykkt eftir pólitísk hrossakaup Fréttir Fleiri fréttir Tilkynnt um tónlistarhávaða um allan bæ Fékk viðurkenninguna ekki afhenta fyrr en á þriðjudeginum: „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig“ Fólk þurfi að gæta sín þegar það leigir íbúðina út í ágúst Skjálfti í Bárðarbungu að stærð 4,8 Límdu efnin á fætur sína Kominn með nóg af tímasetningu lögreglu Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Krapvélar í yfirvinnu í góða veðrinu Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Áfall fyrir bæjarfélagið „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Lokað vegna skorts á starfsleyfi „Við horfum bjartsýn fram á veg“ Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Hægt að skoða þyrlur og sprengjuleitarbúnað Gæslunnar Viðgerð Herjólfs dregst um þrjár vikur: „Vonum að þetta fari nú að verða búið“ Tilgangslaust stríð og æfir hjólabúar „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Sjá meira
Fékk viðurkenninguna ekki afhenta fyrr en á þriðjudeginum: „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig“ Innlent
Fékk viðurkenninguna ekki afhenta fyrr en á þriðjudeginum: „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig“
Fékk viðurkenninguna ekki afhenta fyrr en á þriðjudeginum: „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig“ Innlent