Hagræðingu náð með kvíðaástandi 28. febrúar 2005 00:01
Þjóðleikhússtjóri skapaði viljandi kvíðaástand í röðum leikara til að ná fram hagræðingu. Sjö leikarar ákváðu að segja upp samningum sínum í kjölfar yfirlýsinga leikhússtjórans en samningum þriggja yngstu leikaranna verður sagt upp. Tinna Gunnlaugsdóttir þjóðleikhússtjóri greindi frá því um helgina að til stæði að segja upp samningum tíu leikara við húsið. Ekki ætti að leggja listrænt mat á uppsagningarnar og ekki fara í manngreinarálit og því ætti að segja þeim upp sem hefðu stystan starfsaldur. Í dag kynnti þjóðleikhússtjóri síðan að samningum við þá þrjá sem stystan tíma hefðu unnið yrði sagt upp en sjö hefðu að eigin frumkvæði sagt upp samningi við húsið. Leikhússtjóri segir engan þrýsting hafa verið á þá. Hún telji þó að starfsmannafundur sem haldinn hafi verið á föstudaginn hafi orðið til þess að menn hafi hugsað sinn gang og hugsað á hvaða forsendum þeir væru á samningi. Hún hafi ítrekað komið þeim skilaboðum á framfæri á starfsmannafundum að hún vildi gjarnan að þeir sem væru bundnir verkefnum annars staðar annaðhvort losuðu sig og færu fram á launalaust leyfi eða losuðu sína samninga ef þeir sæju fram á að verkefnin næðu yfir einhvern tíma. Þeir sem sögðu upp voru Þórhallur Sigurðsson, Stefán Jónsson, Edda Heiðrún Backman, Pálmi Gestsson, Sigurður Sigurjónsson, Randver Þorláksson og Ívar Örn Sverrisson en leikhússtjóri vill ekki gefa upp hverjum var sagt upp. Að sögn Tinnu var síðasti uppsagnardagur í dag og á starfsmannafundi á föstudag hafi hún lagt spilin á borðið. Til þess að eitthvað gerðist hafi hún ákveðið að leggja það á starfsfók sitt að búa til ákveðið óvissuástand sem hafi falist í því að hún hafi gefið þau skilaboð skýrt að hún vildi losa ákveðinn fjölda samninga við Þjóðleikhúsið. Tinna neitar því að jafna megi þessum stjórnunarstíl við þrýsting. Hún vilji fremur tala um ákveðna hugmyndafræði sem hún viti, og henni hafi skilist á starfsmannafundinum á föstudag, að leikarar séu sammála
Fréttir Innlent Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira