Gjaldskrá hækkar ef ekki semst 28. febrúar 2005 00:01
Gjaldskrá sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara hækkar um þúsundir króna náist ekki nýir samningar við heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið fyrir kvöldið. Deilt er um svokallað afsláttarþak sem sjúkraþjálfarar segja að hafi lamandi áhrif á starfsemina. Sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfarar og fulltrúar heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins hafa verið boðaðir á samningafund klukkan tvö í dag í húskynnum Tryggingastofnunar ríkisins en samningar sjúkraþjálfara losna á miðnætti og verður gerð lokatilraun á fundinum í dag til að ná nýjum samningum um gjaldskrá. Ljóst er að ef ekki tekst að semja þurfa sjúklingar að greiða fullt gjald og leita síðan réttar síns hjá Tryggingastofnun. Miðað við núverandi gjaldskrá greiða sjúklingar 2.800 krónur fyrir tímann en komist samningar í uppnám hækkar gjaldið strax upp í að minnsta kosti 3.400 krónur. En gjaldskráin er mismunandi eftir stofum og kann hún að hækka um þúsundir króna með tíð og tíma, að sögn Kristján H. Ragnarssonar, formanns sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara, en þeir eru alls um 250. Tæplega þrjátíu þúsund manns nýta sér þjónustu þeirra og er því ljóst að gjaldskrárhækkun kann að hafa mikil áhrif. Spurður á hverju strandi í samningaviðræðunum segir Kristján að deilt sé um svokallað heildarafsláttarþak. Farið sé fram að sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfarar taki á sig heildarafslátt sem þýði í raun að með aukinni þörf á sjúkraþjálfun, sem sé fyrirsjáanleg, vinni sjáflstætt starfandi sjúkraþjálfarar fleiri verk fyrir sama kaup. Það sé því verið að fara fram á að gjaldskrá sjúkraþjálfaranna lækki jafnt og þétt næstu ár. Aðspurður hvaða áhrif þetta kunni að hafa segir Kristján að smám saman þrengist að starfsemi sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara og með tíð og tíma verði hún kæfð algjörlega. Kristján segist aðspurður hæfilega bjartsýnn á að það þokist í samkomulagsátt í viðræðununum í dag. Hann telji að fulltrúar heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins þurfi að koma með nýjar tillögur til að hreyfing verði á málinu í dag. Garðar Garðarsson, formaður samninganefndar heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins, segir í samtali við fréttastofu að allt verði gert til að reyna að ná nýjum samningum í dag. Menn hafi setið yfir þessu alla helgina og rætt málið innan vinnuhópa með sjúkraþjálfurum.
Fréttir Innlent Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira