Sætta sig ekki við heildarþak 28. febrúar 2005 00:01
Sjúkraþjálfarar eru tregir til að lækka verð fyrir þjónustu sína eftir að ákveðnum fjölda skjólstæðinga er náð eins og heilbrigðisráðuneytið fer fram á. Þörfin fyrir sjúkraþjálfun eykst stöðugt vegna breyttrar aldurssamsetningar þjóðarinnar og breyttrar heilbrigðisstefnu sem felst meðal annars í styttri legutíma á sjúkrahúsum. Sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfarar hafa setið á fundi með samninganefnd heilbrigðis- og tryggingaráðuneytisins í húsnæði Tryggingastofnunar ríkisins frá því klukkan tvö í dag. Deilan er sögð á viðkvæmu stigi og óljóst hvort semjist í dag en á morgun rennur samningur stofnunarinnar við sjúkraþjálfara út. Eftir þann tíma þurfa skjólstæðingar sjúkraþjálfara að greiða fullt verð fyrir þjónustu þeirra án greiðsluþátttöku stofnunarinnar. Þar getur munað þúsundum króna. Helsti ásteytingarsteinninn í deilunni er svokallað heildarþak en Tryggingastofnun vill aðeins niðurgreiða þjónustu fyrir ákveðinn fjölda fólks fyrir hvern þjálfara. Eftir það þurfa þjálfararnir að taka á sig mismuninn sjálfir. Gjaldskráin lækki því stig af stigi eftir því sem sjúklingum fjölgar, en þeim fjölgar ört vegna breyttrar aldurssamsetningar þjóðarinnar og þeirrar stefnu heilbrigðisyfirvalda að stytta legutíma á sjúkrahúsum. Kristján H. Ragnarsson, formaður Félags sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara, segir að deilan snúist um rekstrargrundvöll stofanna en sýnt hafi verið fram á það með dæmum að samningurinn hafi ekki haldist í hendur við aukinn kostnað. Sjúkraþjálfarar geti því ekki tekið á sig kvóta eða aðrar skerðingar að óbreyttu.
Fréttir Innlent Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Fleiri fréttir Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Sjá meira