Í lífshættu vegna sambýlismanns 14. janúar 2005 00:01
Nálgunarbann sem sett var á ofbeldisfullan sambýlismann konu hafði lítið að segja og var hún í lífshættu af hans völdum. Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum gleymdi kæru sem hún lagði fram eftir að maðurinn beitti hana alvarlegu ofbeldi. Konan, Hildur Sigurðardóttir, vonast til að betur verði tekið á málum annarra sem lenda í svipaðri stöðu. Fyrstu barsmíðarnar sem Hildur varð vitni að hjá manninum voru þegar hann kýldi unga konu að ástæðulausu á skemmtistað í Vestmannaeyjum árið 1997. Þá fór hún að verða hrædd. Í febrúar árið eftir gekk hann svo í fyrsta sinn í skrokk á Hildi þegar þau voru að ganga heim að kvöldlagi og hún sagði eða gerði eitthvað „vitlaust“. Hann sneri hana niður en fólk sem kom aðvífandi kom í veg fyrir að ofbeldi gengi lengra að þessu sinni. Hildur var alltaf hrædd í sambandinu eftir þetta en hélt alltaf að þetta myndi lagast. Á þessum tímapunkti var hún líka ófrísk að dóttur þeirra. Hildur skildi fyrst við manninn árið 1999 en það breytti í raun litlu. Maðurinn fylgdist með ferðum hennar og fjölskyldunnar og ofbeldið hélt áfram. Hún fékk í kjölfarið nálgunarbann á hann en það breytti litlu. Hildur leitaði margsinnis til lögreglunnar sem stoðaði lítið. Ef hann var handtekinn var honum nánast sleppt aftur um leið. Langur sakaferill, þar á meðal ofbeldisbrot, virðast ekki hafa skipt máli þegar kom að því á taka á heimilisofbeldinu. Maðurinn var til að mynda nýbúinn að hljóta skilorðsbundinn dóm fyrir að berja ungan pilt þegar hann tók Hildi svo harkalegu hálstaki að litlu munaði að hún missti lífið, eins og áverkavottorð sýnir. Hildur varð rosalega reið, fékk kjark til að kæra en ekkert kom út því. Það fannst henni afar sárt og líkir því við að kerfið sé einnig að sparka í mann.
Fréttir Innlent Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira